Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Í bókinni Dýralæknatal, búfjár-
sjúkdómar og saga, sem gefin var
út af Dýralæknafélagi Íslands árið
2004, er farið vel yfir bakgrunn og
sögu sauðfjárveikivarna. Í kafla
sem fjallar um karakúlpestirnar
eftir Brynjólf Sandholt kemur
fram að erlent sauðfé hafi verið
flutt inn í einhverju magni allt frá
landnámsöld. Þessi innflutningur
hafði takmörkuð áhrif á íslenska féð
til langframa, en í nokkrum tilfellum
kom til landsins fé sem flutti með sér
áður óþekkta búfjársjúkdóma, sem
hið einangraða íslenska sauðfjárkyn
hafði litla mótstöðu gegn.
Innflutningur á pestum
Á miðri átjándu öldinni var flutt inn
kynbótafé til að auka ullargæði, en
með því fylgdi kláðamaur sem olli
fjárkláðanum fyrri. Á miðri nítjándu
öld var flutt inn fé til að kynbæta
fyrir kjötgæðum, en með því kom
kláðamaur í annað sinn og breiddist
fjárkláði um sveitir.
Upphaf riðuveiki á Íslandi er
rakið til innflutnings á hrúti árið
1878, sem var af ensku kyni. Árið
1933 voru fluttar inn ær og hrútar
af karakúlkyni frá Þýskalandi.
Við þann innflutning var beitt
varúðarráðstöfunum með því að
setja sauðféð í tveggja mánaða
einangrun í Þerney, skammt utan
við Reykjavík. Þar sýndi féð
engin sjúkdómseinkenni og voru
gripirnir sendir til bænda víða um
land. Þeir báru þó með sér þrjá
smitsjúkdóma, sem hafa verið
kallaðir karakúlpestirnar; votamæði,
þurramæði og garnaveiki.
Frá Skotlandi barst kýlapest með
25 kindum sem voru fluttar inn
árið 1932. Árið 1947 voru fluttar
inn kindur sem voru felldar meðan
þær voru enn í einangrun, en þær
reyndust sýktar af fótaveiki.
Sjúkdómar valda búsifjum
Votamæði varð fyrst vart í
karakúlhrút veturinn 1933–34,
sem fluttur var að Deildartungu
í Borgarfirði. Þaðan fór sóttin á
marga bæi í firðinum og haustið
1936 hafði hún borist norður fyrir
Holtavörðuheiði. Hún olli miklu
tjóni og allt að 50 prósent fjárins
féll á ári á sumum bæjum.
Þurramæði uppgötvaðist fyrst í
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu
árið 1939 og var rakin til hrúts
af karakúlkyni. Fyrst var talið að
veikin væri einangruð við Suður-
Þingeyjarsýslu, en veturinn 1942–
43 kom í ljós að sjúkdómurinn var
orðinn útbreiddur um Vesturland og
Suðurland. Svo mikil afföll urðu á
sauðfé að til að viðhalda hjörðum
þurfti víða að setja á 25–40 prósent
lömb í stað 10–15 prósent.
Garnaveikin var fyrst uppgötvuð
árið 1938 á Útnyrðingsstöðum á
Völlum á Austurlandi. Nokkru
síðar fannst hún í kind úr
Hrunamannahreppi. Í báðum
tilfellum var hægt að rekja sóttina
til karakúlfjár sem flutt var á þessi
svæði. Fljótlega kom í ljós að veikin
var dreifð víða um landið.
Aðgerðir stjórnvalda
Stjórnvöldum varð ljóst að þörf væri
á aðgerðum vegna karakúlpestanna.
Fyrstu lögin gegn útbreiðslu pestanna
voru sett árið 1936. Árið 1941 voru
sett lög sem tóku á vörnum gegn
útbreiðslu mæðiveikinnar, stuðningi
til bænda, varnargirðingum og
fjárskiptum. Árið 1947 var komin
nokkur reynsla á niðurskurð,
fjárskipti og varnargirðingar og voru
sett endurbætt lög um varnir gegn
útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma
og útbreiðslu þeirra. Árið 1956
var ákveðið að lögin skyldu ná til
kýlapestar og riðuveiki, en síðarnefndi
sjúkdómurinn var þá farinn að valda
tjóni. Þessi lög voru svo felld inn í
lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn
þeim árið 1993.
Ráðist var í fyrstu fjárskiptin
vegna karakúlpestanna í Suður-
Þingeyjarsýslu árið 1941. Mestu
fjárskiptin voru þegar allt fé var skorið
niður frá Hvalfirði austur að Ytri-
Rangá haustið 1951 eftir að garnaveiki
var orðin útbreidd og allt svæðið haft
fjárlaust í eitt ár.
Fyrstu girðingarnar til varnar
útbreiðslu sauðfjársjúkdóma voru
settar upp á árinu 1937 og er talið
að allt að 2.000 kílómetrar hafi verið
reistir á vegum Sauðfjárveikivarna og
stendur stór hluti þeirra girðinga enn.
Jafnframt voru ráðnir vörslumenn við
hlið, sem sáu um að stugga við fé og
gera við girðingar ef þurfti. Með því
tókst að halda pestunum frá stórum
svæðum og tryggja þar með að líflömb
fengjust í stað þess sem skorið var
niður.
Tekist hefur að útrýma flestum
þessum sjúkdómum og er til bóluefni
gegn garnaveiki. Á allra síðustu
misserum hafa vaknað vonir um að
riðunni verði útrýmt næst, þar sem
fundist hafa arfgerðir í íslensku fé
sem staðfest er að veiti mótstöðu gegn
riðu, og er verið að rannsaka fleiri
erfðabreytileika sem veita mögulega
mótstöðu gegn sóttinni.
Riðan náði hámarki eftir öld
Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir
hjá Matvælastofnun (MAST), segir
að þegar byrjað var að berjast gegn
riðuveiki af mestu afli á níunda
áratugnum hafi hún verið orðin mjög
útbreidd og olli miklum búsifjum.
Hún hafi þá verið búin að krauma í
nánast eina öld en var fyrst afmörkuð
við Mið-Norðurland.
Á áttunda og níunda áratugnum
greindist hún í öllum landshlutum,
fyrir utan örfá svæði sem hafa enn
sloppið við riðu. „Þar sem hún var
verst nægði ásetningsféð á haustin
ekki til að halda stofninum við, það
FRÉTTASKÝRING
Búfjársjúkdómar:
Varnarlínur og niðurskurður
ekki lengur einu tólin
– Riðuónæmar arfgerðir breyti nálguninni í sauðfjárveikivörnum
Hér á landi hafa verið lagðar ýmsar takmarkanir á sauðfjárræktina
til að hindra útbreiðslu búfjársjúkdóma. Ein sterkasta birtingarmynd
þeirra eru sauðfjárveikivarnarhólf sem skipta Íslandi í 25 hluta og
niðurskurður þegar upp kemur riða. Þessar hömlur eiga sér langa
sögu en óvíst er hvort hún verði mikið lengri með nýjum verkfærum í
baráttunni við búfjárpestir.
Líklegt er að breytingar verði á fyrirkomulagi sauðfjárveikivarna þar sem nú verður hægt að rækta gegn riðu.
Varnarhólf hafa tíðkast frá miðri tuttugustu öldinni og voru þá til varnar gegn útbreiðslu nokkurra sjúkdóma. Nú
er riðan síðasti alvarlegi skaðvaldurinn. Ær með tvö lömb á beit við Landmannalaugar. Mynd / ÁL
Smitefni berast fyrst og fremst frá dýri til dýrs. Hjarðir blandast í réttum og
fjárragi á haustin sem er meðal þeirra leiða sem sauðfjárpestir dreifast. Mynd / ÁL
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Búvörur SS | Fosshálsi 1, Reykjavík | 575 6070 | www.buvorur.is
Nýr fóðurverðlisti SS -Verðlækkun
SS festir verð á fóðri og gilda þau óbreytt til 1. ágúst 2024.
Bjóðum eingöngu upp á óerfðabreytt fóður.
Ó
ER
FÐABREYTT
FÓÐU R
Allir sem að kaupa kjarnfóður fyrir mjólkurkýr er boðin:
• Fóðurráðgjöf/áætlun er unnin af RML
• Frí heysýnataka og tvær fríar greiningar
• Við túlkum niðurstöður heysýna
Skannaðu Qr-kóðann til að
sjá fóðursíðuna