Bændablaðið - 21.09.2023, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
UTAN ÚR HEIMI
Bretland:
„Sauðirnir verða að fara“
– Hörð umræða um tilverurétt sauðfjár utan láglendis
Á Bretlandseyjum hefur undan
farið verið tekist á um hvort sauðfé
megi ganga á hálendi.
Breskir fjölmiðlar hafa frá því
í vor fjallað um harðvítugar deilur
þar sem fólk vill ýmist fé burt af
breskum heiðalöndum og stöðvun
niðurgreiðslna til greinarinnar, eða
berst með oddi og egg fyrir tilverurétti
sauðfjár ofan láglendis.
Það var Ben Goldsmith,
fyrrverandi ráðgjafi umhverfis-,
matvæla- og dreifbýlisráðuneytisins
og bróðir fyrrverandi Tory-þing-
mannsins Zacs Goldsmith, sem vakti
hörð viðbrögð er hann viðhafði m.a.
þau ummæli að sauðfé væri einhver
helsta hindrun í vegi þess að friðlýst
svæði Bretlands döfnuðu. Hann
telur að ekki eigi að niðurgreiða
sauðfjárrækt og fullyrti að Bretland
væri fátækara en ella af villtum
blómum, fuglasöng og dýralífi yfir
höfuð, vegna beitar milljóna sauðfjár.
Fleiri nautgripi en færra sauðfé
„Sauðirnir verða að fara,“ skrifaði
Goldsmith á samfélagsmiðlum. Í
efnahagslegu tilliti væri sauðfjárrækt
ólífvænleg og gengi aðeins vegna
styrkja skattgreiðenda. Mikilvægi
hennar fyrir fæðuöryggi þjóðarinnar
væri óverulegt. Meðalaldur sauðfjár-
bænda hækkaði stöðugt og tekjur
þeirra yrðu sífellt rýrari.
„Sauðfé hefur hræðileg áhrif á
vatnasvæði okkar, þjappar jarðveg,
eyðir gróðri og eykur þannig jarðvegs-
eyðingu, flóð og árstíðabundna
þurrka. Þetta kostar landið milljarða
á hverju ári,“ sagði hann.
Goldsmith, sem er í dag forstjóri
fjárfestingafyrirtækisins Menhaden
og yfirlýstur umhverfissinni, telur
nautgriparækt hins vegar bæði mikil-
væga og hagkvæma og hana eigi að
auka á kostnað sauðfjárhalds.
Sauðféð á sér öfluga talsmenn
og eru viðbrögð á þá leið að
Goldsmith fari með staðlausa stafi
og landbúnaðarsaga Bretlands sé til
marks um það.
Allt tal um að fjarlægja fé af
hálendi sé algerlega úr takti við
raunveruleikann. Kjötið og ullin
séu ekki aðeins mikilvæg fyrir
staðbundið hagkerfi heldur mjög
eftirsótt af bæði heimamönnum
og gestum.
Einfeldningslegt
og óupplýst viðhorf
Landssamtök breskra sauðfjár-
bænda sendu frá sér yfirlýsingu vegna
málsins þar sem kom fram að skoðanir
Goldsmiths og fylgismanna hans
væru ögrandi og sýndu einfeldnings-
legt og óupplýst viðhorf til mikilvægs
landbúnaðargeira.
Fjölmiðillinn The Scottish
Farmer segir uppþotið hafa vakið
reiði gjörvalls landbúnaðar-
samfélagsins. Í sama streng tóku
National Sheep Association (NSA),
hagsmunasamtök breskra sauðfjár-
framleiðenda.
„Sauðfé hefur verið á Bretlands-
eyjum frá því að nýneolithískir
landnemar komu hér að ströndum
fyrir um 3000 f.Kr. – fyrir 5.000
árum,“ sagði framkvæmdastjóri
NSA, Phil Stocker.
„Það hefur átt sinn þátt í að móta
og viðhalda því landslagi sem við
sjáum og njótum í dag, þar með talið
9 af 13 þjóðgörðum Englands sem
staðsettir eru á hálendissvæðum.
Það er engin tilviljun að flestir
þjóðgarðar okkar eru á svæðum
þar sem graslendi og sauðfé hefur
verið ríkjandi kynslóðum saman.
Hið einstaka umhverfi, sem starfar
oftast í sátt við sauðfjárrækt, er afar
dýrmætt í tengslum við vatnsbúskap
og landgæði, kolefnisbindingu og
náttúru og gefur fólki félagslegan
og heilsufarslegan ávinning,“ sagði
Stocker.
Fimmtán milljónir sauðfjár
NSA hafnar því að sauðfjárbeit
ofan láglendis hafi skaðleg áhrif og
nefnir sem dæmi að 53% svæða í
uppsveitum Bretlands, sem fylgst
er sérstaklega með, teljist nær öll í
jafnvægi eða vistkerfislegum bata.
Fjöldi sauðfjár á Bretlandi
jókst um 2% árið 2022 og varð þá
hátt í 15 milljónir, skv. opinberum
upplýsingum. Árleg lambakjötsneysla
pr. íbúa var um 4,7 kg árið 2016 skv.
OECD-FAO Agricultural Outlook.
/sá
Fyrir þá bændur sem eru hrifnir
af smáforritum er rétt að kynna til
sögunnar eitt slíkt sem ber nafnið
Insights by Prospera.
Með notkun þess fá
notendur yfirsýn yfir
ýmis vandamál á borð
við ofvökvun, eða ef
vökvun skortir. Má sjá
stíflur eða leka auk þess
sem með myndum í afar
hárri upplausn er hægt að
hafa yfirlit yfir ræktunina
í heild.
Nærmyndir af
plöntum greina
í tæka tíð skemmdir á
uppskeru, en Insights
forritið býður upp á
nákvæmar skýrslur
yfir möguleg meindýr, sjúkdóma í
plöntum, ofvöxt, næringarskort og þar
fram eftir götunum. Skiptist forritið
í tvenns konar undirkafla, kallaða
Irrigation Insights og Plant Insight,
sem fara yfir stöðu á áveitu annars
vegar og plöntum hins vegar.
Mikill hagur fyrir hagann
Er þarna um afar hagkvæma og
skilvirka yfirsýn að ræða sem gerir
bændum kleift að gera fyrirbyggjandi
ráðstafanir fyrr en ella. Vilja hönnuðir
Insights by Prospera meina að þarna
sé hagur í bæði tímasparnaði og
minni fjárútlátum enda veiti forritið
notendum nákvæmari upplýsingar en
þeir myndu greina sjálfir og mun fyrr
en ella. Segir talsmaður fyrirtækisins
að „með því að horfa á
akrana í gegnum gervihnött
getur bóndi sem notar
Irrigation Insights greint
áveituvandamál sem erfitt
er að sjá á jörðu niðri með
berum augum.
Afgreitt vandamálið mun
hraðar og áður en það
skemmir meira út frá sér.
Vikulegar skýrslur geri
kleift að sjá þróun vaxtar
á ökrum svo hægt sé að
framkvæma árangursríkustu
meðferðirnar á skilvirkan
hátt – sparað þúsundir í
aðföngum og launakostnaði.“
Vilt þú stela hugmyndinni?
Hefur smáforritið enn sem komið er
ekki gagnast íslenskum bændum. Það
er þó rétt að taka fram fyrir bændur
utan landsteinanna að á forritinu er
tveggja ára ábyrgð innifalin, sem felur
í sér viðgerðarkostnað, varahluti og
vinnu, uppsetningu á vélbúnaði
auk þess sem hugbúnaðaráskrift er
innifalin á fyrsta ári þjónustunnar.
Geta neytendur valið að endurnýja
áskriftina árlega eða á því ári sem þeir
kjósa að fá yfirsýn yfir akra sína. /SP
Áveituappið Insights
Fjórðungur jarðarbúa
glímir við vatnsskort
Vatnsskortur hrjáir þjóðir víða
um heim og þar á meðal í Evrópu.
Talin er þörf á mun meiri stjórnun
vatnsforða jarðar.
Þau svæði sem hafa orðið verst
úti í heiminum vegna vatnsskorts eru
Mið-Austurlönd og Norður-Afríka, þar
sem 83% fólks verða fyrir afar miklum
neikvæðum áhrifum vegna vatnsskorts.
Búist er við að sú tala hækki í 100%
árið 2050.
Af 25 löndum sem verða nú fyrir
afar miklu álagi vegna vatnsþurrðar
eru Barein og Kýpur efst á listanum
og Evrópulöndin Belgía og Grikkland
í 18. og 19. sæti, skv. skýrslu World
Resources Institute (WRI). Katalónía
á Spáni lýsti yfir neyðarástandi vegna
þurrka í 24 sveitarfélögum þar sem
búa um 25 þúsund manns síðla sumars
og hefur fólk þar aldrei séð jafnlága
vatnsstöðu. Frakkar áttu einnig í mestu
vandræðum með ferskvatnsöflun.
Vatnseftirspurn aukist
Íslendingar hafa sem kunnugt er notið
þeirra gæða að hafa aðgang að gnægð
vatns. Þó hefur borið á vandræðum í
langvarandi þurrkatíð að sumri á Norður-
og Austurlandi á síðustu árum. Þar eru
blágrýtissvæði þar sem mjög gamall
berggrunnurinn er bæði þéttur og
vatnssnauður. Endurnýjanlegar fersk-
vatnsauðlindir Íslands eru taldar vera
árlega um 666.667 rúmmetrar á mann.
Til samanburðar eru vatnsauðlindir í
ýmsum Afríkuríkjum undir 1.000
rúmmetrum á mann.
Á heimsvísu er gert ráð fyrir að
eftirspurn eftir vatni muni aukast um
20–50% fyrir árið 2050. Hún hefur
þegar meira en tvöfaldast síðan 1960.
Euronews greinir frá því að yfir 20 lönd
noti nú meirihluta endurnýjanlegrar
vatnsveitu sinnar á hverju ári, sem geri
þau mjög viðkvæm fyrir þurrkum.
Nýjar rannsóknir sýni að fjórðungur
jarðarbúa glími við vatnsskort. Löndin
sem eru í mestri hættu noti reglulega
um 80% af endurnýjanlegri vatnsveitu
sinni til að vökva uppskeru, brynna
búfé, í iðnað og heimilishald á hverju
ári. Jafnvel þurrkar til skamms tíma
geti gert að verkum að þessar þjóðir
verða uppiskroppa með vatn eða að
stjórnvöld velji að skrúfa fyrir til að
verja þann vatnsforða sem eftir er.
Knúið á um skilvirkari landbúnað
„Vatnsskortur af þessu tagi stofnar lífi,
störfum, fæðu- og orkuöryggi fólks
í hættu,“ segir í skýrslu WRI. „Vatn
er nauðsynlegt til að hlúa að réttlátu
samfélagi, rækta fæðu, framleiða
rafmagn, viðhalda heilsu og uppfylla
loftslagsmarkmið heimsins,“ segir
jafnframt. Fólksfjölgun, efnahags-
þróun og loftslagsbreytingar eigi eftir
að gera ástandið enn verra ef vatns-
birgðum jarðar verði ekki stjórnað.
Um 60% af vökvunarlandbúnaði
í heiminum stendur nú þegar frammi
fyrir mjög miklu vatnsálagi, segir
WRI. Það ógni verulega ræktun t.d.
sykurreyrs, hveitis, hrísgrjóna og maíss.
Þó séu til lausnir eins og að gera
landbúnað skilvirkari, meðhöndla og
endurnýta skólp, afsöltun vatns og
að fjarlægja gróður sem kalli á mikla
vökvun, svo sem gras. NASA varaði
við því að helmingslíkur væru á því
að árið í ár yrði það heitasta í sögunni
og miklu hlýrra en jarðarbúar hefðu
nokkru sinni séð fyrr. /sá
Jarðarbúar glíma margir við vatnsskort. Það vantar þó ekki vatnið á Íslandi,
í það minnsta ekki enn þá. Mynd / Steinunn Ásmundsdóttir
Deilur eru á Bretlandseyjum um réttmæti þess að sauðfé gangi á svæðum
utan láglendis og sumir vilja fé burt af heiðalöndunum. Mynd / Rick Barrett