Bændablaðið - 21.09.2023, Qupperneq 28

Bændablaðið - 21.09.2023, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023 LÍF&STARF Kjötafurðir af forystufé: Tilraunir með álegg og hátíðarsteik Matvælasjóður úthlutaði Fræða­ setri um forystu fé, sem stað sett er á Svalbarði í Þistil firði, styrk að upp­ hæð 3.000.000 kr. til að markaðs­ setja og þróa gæða kjötafurðir af forystufé. Að verkefninu standa matvæla- fræðingarnir Arnkell Arason og Einir Björn Ragnarsson í samstarfi við Daníel Hansen, umsjónarmann fræðasetursins. Forystufé með fágæta eiginleika Á heimasíðu fræðasetursins kemur fram að frá upphafi byggðar hefur forystufé verið órjúfanlegur hluti af sauðfjárhaldi Íslendinga og sé í miklum metum hjá sauðfjárbændum þar sem féð er talið búa yfir ákveðnum hæfileikum. Það þykir t.d. vera með sérstaka forystueiginleika, fer fyrir hópi sauðfjár og leiðir það í skjól í vondum veðrum. Það þykir einnig vera harðgerðara en annað fé, háfættara og meira í vexti og hafa hæfileika til að finna á sér veðrabrigði, sem var verðmætur eiginleiki í beitarbúskap fyrri tíma. Álíka hegðunarmynstur sé hvergi þekkt í heiminum og því séu þessir eiginleikar afar fágætir. Stofn forystufjár er lítill, eða einungis um 1.500 talsins, og er skilgreint sem sérstakur stofn sauðfjár innan Bændasamtaka Íslands. Kjötið fínlegt og bragðgott Bændablaðið náði tali af Daníel Hansen, sem staddur var á ullar- ráðstefnu í Kaupmannahöfn, og forvitnaðist nánar um þetta verkefni. Daníel segir að hugmyndin að verkefninu hafi kviknað þegar þeir Arnkell hittust austur á Egilsstöðum. „Ég var staddur á sýningu austur á Egilsstöðum þar sem ég var að kynna nokkrar afurðir af forystufé, tvíreykt hangikjöt og snakkpylsur, þegar við Arnkell tókum tal saman. Hann sýndi þessu mikinn áhuga og úr varð þessi hugmynd að þróa kjötafurðir af forystufé sem lúxus matvöru. Spurður út í hver sé munurinn á kjöti af forystufé og sauðfé segir Daníel að bragðið sé öðruvísi. „Það er mikið minna kjöt á forystufé, það er fituminna og bæði bragð og áferð er öðruvísi. Þetta er fínlegt og mjög bragðgott kjöt, mætti segja að það sé mitt á milli þess að vera geitakjöt og kindakjöt.“ Úthlutað var úr sjóðnum fyrr í sumar og hefur hugmyndavinna hafist um hvernig best sé að verka og þurrka kjötið. Einir Björn Ragnarsson, matvælafræðingur og kjötiðnaðarmaður, mun sjá um þær tilraunir. „Við höfum nokkrar hugmyndir um hvernig best sé að verka og þurrka kjötið. Við munum byrja á því að sjá hvað gerist þegar við hengjum kjötið upp án allra bragðefna, hvað náttúran gerir við það og hvernig gæðin breytast við það. Það eru líka uppi humyndir um að láta kjötið hanga með salti eða kryddi. Þetta eru lítil læri, þau minnstu eru eins og hálft venjulegt lambalæri, en vegna þess spái ég því að salt og krydd gangi vel inn í kjötið og bragðið njóti sín enn betur. Við munum nýta haustið til að prófa okkur áfram og fáum einnig innblástur frá aðferðum erlendis.“ Takmarkað upplag Hingað til hafa kjötafurðir af forystufé ekki verið nýttar til mann- eldis að neinu marki en einungis eru um 80–100 forystufé slátrað á hverju hausti og því ljóst að framleiðslan verður í litlu magni og árstíðabundin. „Efniviðurinn er ekki mikill, þar sem stofninn er lítill og það er til takmarkað upplag af lærum af forystufé,“ segir Einir. Aðspurður segir Einir að stefnt verði að því að bjóða upp á vöru sem hægt verði að borða hráa, líkt parmaskinku. Vonandi verði einnig hægt að bjóða upp á hátíðarsteik, sem verður sérstaklega bragðmikil. /ÞAG Kjötafurðir af forystufé hafa ekki verið nýttar til manneldis að neinu marki en einungis eru um 80–100 forystufé slátrað á hverju hausti. Mynd / Fræðasetur um forystufé Einir Björn Ragnarsson, mat væla- fræðingur og kjötiðnaðar maður. Mynd / Aðsend. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri: Metaðsókn í Reiðmanninn Reiðmaðurinn er nám í reið­ mennsku og hestafræðum sem fer fram á vegum endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands. Boðið er upp á nám til allt að þriggja ára sem er Reiðmaðurinn I, Reiðmaðurinn II og Reiðmaðurinn III – en nemendur útskrifast að loknu hverju ári fyrir sig. Í ár hefja tæplega 200 manns nám í Reiðmanninum sem er metfjöldi nemenda. Randi Holaker reiðkennari er verkefnastjóri Reiðmannsins og hefur umsjón með náminu í samstarfi við Áshildi Bragadóttur, sem er endurmenntunar- og nýsköpunarstjóri hjá LbhÍ. Heildstætt nám „Reiðmaðurinn er nám ætlað fróðleiksfúsum reiðmönnum og áhugafólki um reiðmennsku sem vill auka við þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi, en ekki síður fyrir þá reiðmenn sem vilja fara í þá vinnu að eflast sem manneskjur,“ segir Randi. Hún telur ástæðuna fyrir þessum miklum fjölda nemenda vera skemmtilegt og vel skipulagt nám. „Þetta er heildstætt nám þar sem farið er yfir breitt svið hestamennskunnar, hvort sem um ræðir fóðrun, hirðingu, sögu, reiðmennsku, kynbætur eða fimiæfingar. Það er lögð mikil áhersla á samheldni og hópefli. Nemendur í Reiðmanninum koma úr öllum áttum en hér tilheyra þeir ákveðnum hópi, samfélagi, þar sem allir hafa sama áhugamálið, hestamennskuna. Hver hópur fyrir sig eyðir miklum tíma saman, þau hvetja hvert annað áfram og standa saman sem gaman er að fylgjast með.“ Námið er bæði bóklegt og verklegt til allt að 19 eininga á framhaldsskólastigi (fein) og lýkur með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Randi segir að reynslumikill hópur reiðkennara kenni Reið- manninn víðs vegar um landið sem nemendur njóti góðs af. „Það er starfandi frábær reiðkennarahópur hér í Reiðmanninum, samtals 15 reiðkennarar, en án þeirra væri þetta nám ekki það sem það er í dag. Faglegir og flottir reiðmenn og reiðkennarar sem njóta mikilla vinsælda meðal sinna nemenda. Auk þess koma þó nokkrir gestakennarar að náminu.“ Hestamaðurinn og tamninga- meistarinn Reynir Aðalsteinsson, heitinn, átti hugmyndina að námi Reiðmannsins og kom því á laggirnar árið 2008 í samstarfi við LbhÍ. Fyrst um sinn var námið til tveggja ára en eftir því sem tíminn leið og nemendum fjölgaði hafi myndast eftirspurn eftir því að bjóða upp á meira nám. „Þá var ákveðið að bæta við námi á þriðja ári sem var kallað framhaldsnámskeið og fljótlega vatt þetta upp á sig og námskeiðunum fjölgaði enn meir.Við höfum t.d. boðið upp á námskeið í fortamn- ingum, frumtamningum og járn inganámskeið. Eftir áramót munum við bæta við keppnisnámskeiði sem mun enda á stóru Reiðmannsmóti þar sem keppt verður í mismunandi keppnisgreinum í mismunandi flokkum þar sem reiðkennari fylgir þeim eftir í keppni.“ Metnaðarfullir nemendur Námið er kennt víðs vegar um landið en í ár eru sex hópar sem stunda nám á 1. ári, fjórir hópar sem stunda nám á 2. ári og þrír hópar sem stunda nám á 3. ári. Kennt er í Kópavogi, Selfossi, Mið-Fossum, Hvammstanga, Sauðárkróki, Akureyri og Egilsstöðum svo nokkrir staðir séu nefndir. Randi segir að þeir nemendur sem sæki nám í Reiðmanninum séu metnaðarfullir og kröfuharðir. „Við sem stöndum að náminu verðum að vera á tánum, nemendur eru metnaðarfullir og kröfuharðir og við reynum að vera dugleg að fá frá þeim mat á náminu. Við sendum t.d. út kannanir tvisvar á ári þar sem leitað er eftir endurmati, hvað er jákvætt og hvað mætti skoða betur sem við reynum að bregðast við eins og hægt er.“ Að bæta sig sem reiðmann Gróa Björg Baldvinsdóttir er ein þeirra sem hefur nám í Reiðmanninum í vetur. Gróa starfar hjá Terra sem framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar en auk þess situr hún í varastjórn Landssambands hesta- mannafélaga (LH) og í landsliðsnefnd LH. Gróa segir að hún hafi fyrst og fremst skráð sig í nám í Reiðmanninum til þess að auka við sína kunnáttu. „Það hefur orðið svo mikil þróun í reiðmennsku og hestamennskunni undandarin ár að ég fann að það var kominn tími til að bæta við sig meiri þekkingu og kunnáttu og að bæta mig sem reiðmann. Ég var búin að heyra hvað þetta væri skemmtilegt nám og það heillaði mig líka þessi heildstæða nálgun – að í náminu fæ ég upplýsingar, kennslu og þjálfun um allt það helsta sem viðkemur hestamennskunni,“ segir Gróa að lokum. /ÞAG Nemendur í Reiðmanninum koma úr öllum áttum en allir hafa þeir sama áhugamálið, hestamennskuna. Ný varanleg bogahýsi Ódýr og hagkvæmur kostur fyrir geymslur og útihús sem uppfyllir byggingareglugerðir � Stöðluð hönnun, grunneining 5 x 6 m. - lengjanleg í 3 m. einingum � Hurðargat á gafli 2,75 x 2,75 m. � Í boði bæði einangruð og óeinangruð � Verð frá kr. 1.320.00 m/vsk. fyrir 5 x 6 fm. bogahús Nánari upplýsingar í gegnum tölvupóst hysi@hysi.is Hýsi-Verkheimar ehf. | Smiðjuvegi 5, Kópavogi | Sími 497 2700 hysi@hysi.is | hysi.is | hysi.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.