Bændablaðið - 21.09.2023, Síða 32

Bændablaðið - 21.09.2023, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023 LÍF&STARF Réttað í Hruna- og Skeiðaréttum Hrunaréttir við Flúðir voru haldnar föstudaginn 8. september og gengu vel þrátt fyrir töluverða rigningu. Bændur og búalið létu það ekki slá sig út af laginu og gengu réttarstörf og rekstur heim eins og í sögu. Um 3.500 fjár voru í réttunum. Skeiðaréttir voru svo haldnar daginn eftir, eða 9. september, í blíðskaparveðri. Þar voru um 5.000 fjár í réttunum og mikill mannfjöldi. Allt gekk mjög vel fyrir sig. Magnús Hlynur Hreiðarsson var í báðum réttunum og fangaði stemninguna með meðfylgjandi ljósmyndum. Skeiðaréttir voru haldnar laugardaginn 9. september. Um fimm þúsund fjár voru í réttunum. Ægir Lúðvíksson tók þessa drónamynd. Mynd / Ægir L. Karl Jónsson frá Bjargi að draga í Hrunaréttum. Fjallkóngur Skeiðarétta, Ingvar Hjálmarsson á Fjalli. Hann var ánægður með ástandið á lömbunum og fénu almennt. Helgi Haraldsson frá Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi kom með tvo hressa Breta í réttirnar, sem voru að kynna sér íslenska sauðfjárrækt og kynnast réttarlífinu. Báðir hafa þeir unnið fyrir stjórnvöld í Bretlandi á sviði landbúnaðarmála. Árni Þór Hilmarsson var hress í Hrunaréttum en hann er m.a. með töluvert af forystufé í Syðra-Langholti. Það voru allir brosandi í réttunum enda fátt skemmtilegra en að vera innan um skemmtilegt fólk. Jón K.B. Sigfússon mætti með myndavélina í Hrunaréttir 8. september en hér er hann með Þorsteini Loftssyni, bónda í Haukholtum. Þessar þrjár vinkonur voru vel gallaðar í rigningunni í Hrunaréttum en þetta eru, frá vinstri, þær Heiðdís Hanna frá Haukholtum, Sigrún frá Fossi og Kirsten, sem býr á Flúðum. Gylfi Sigríðarsson í Steinsholti mætti flottur með hattinn sinn í Skeiðaréttir. Birna Þorsteinsdóttir á Reykjum, bæ í næsta nágrenni við Skeiðaréttir, stundum líka kallaðar Reykjaréttir.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.