Bændablaðið - 21.09.2023, Qupperneq 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
TILBOÐSVERÐ
3.500.000,-
Við auglýsum svo
sannarlega ekki “verð frá”. VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
DFSK Arctic
Transport 100 %
Rafmagnsbíll
Burður 1280kg
Öll hjólin eru með beinni innspýtingu, rafmagnstýri, spili, dráttarkrók, handahlífum, sætisbaki,
háu og lágu drifi með læsingu. Vökvabremsum, álfelgum og eru tveggja manna traktorsskráð.
Nánari upplýsingar á www.nitro.is
Vinnuþjarkar í leik og störf
CFMOTO 1000
Nítró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848
CFMOTO 520
Kr. 1.499.000,-
Án vsk. Kr. 1.208.870,-
Kr. 2.390.000,-
Án vsk. Kr. 1.946.677,-
Öll CST dekk með
20% afslætti út september.
20% AFSL ÁTTUR
Riða er langvinnur og ólæknandi
smit sjúkdómur sem veldur svamp-
kenndum hrörnunarskemmdum í
heila og mænu í sauðfé.
Smitefnið er afar lífseigt prótein
nefnt príon eða PrP. Skaðvaldurinn
er hvorki baktería né veira. Í flestum
vefjum dýra myndast heilbrigð príon,
sem eru bundin við yfirborð frumna,
mest við yfirborð taugafrumna í heila.
Riðupríon heldur að mestu sömu
efnasamsetningu og eðlilegt príon
en hefur aflagast. Riðupríon fjölga
sér með því að laga heilbrigð príon
eftir sinni eigin mynd. Einkennin
byrja að koma fram þegar skemmdir í
heilanum magnast.
Mjög langan tíma getur tekið
að greina riðu eftir að kind
sýkist. Talað er um kláðariðu,
taugaveiklunarriðu eða lömunarriðu,
eftir því hvaða sjúkdóms einkenni
eru mest áberandi. Einkennin
geta verið mismunandi frá degi til dags
og getur sami gripur sýnt einkenni úr
fleiri en einum einkennaflokki. Kindur
geta bráðdrepist án þess að hafa
sýnt nokkur einkenni, eða lifað langa
ævi án þess að veikin komi fram.
Sjúkdómurinn getur valdið miklum
kvölum í sumum tilfellum.
Meðal einkenna eru þrálátur kláði
í höfði, aftanverðu baki, síðum og
víðar. Sauðféð getur verið styggt og
haldið sig til hlés, ásamt því að titra
og gnísta tönnum. Jafnframt geta
kindurnar misst stjórn á hreyfingum
sem sést á því að þær sletta fótum til í
gangi, bera fætur hátt og liggja mikið.
Helstu smitleiðir eru í gegnum munn
en getur líka borist í gegnum sár
á meðgöngu. Smit getur borist á
milli bæja með lifandi kindum, skít,
áhöldum og heyi. Mesta smithættan
er þegar kindur eru innandyra á
sauðburði þar sem smitefnið í hildum
og legvatni er margfalt á við aðra
líkamsvessa og -vefi. Á svæðum, eins
og á Norðurlandi, þar sem riða hefur
verið landlæg í áratugi, leynist
smitefni víða í jarðveginum. Því getur
riða komið upp á bæjum sem hafa
verið lausir við sjúkdóminn í áratugi.
Engin aðferð er viðurkennd hérlendis
til að staðfesta sjúkdóminn í einkenna-
lausum lifandi gripum, þó aðferðir til
þess séu í þróun. Því er enn nauð-
synlegt að rannsaka heilavef til að
skera úr um riðusmit. Engin lyf eða
bóluefni eru til við sóttinni, en miklar
vonir eru bundnar við útbreiðslu erfða-
breytileika með mótstöðu gegn riðu.
Fyrstu heimildir um riðu eru frá 1732,
en mun hún þá hafa verið þekkt á
Bretlandseyjum og nokkrum stöðum
í Evrópu. Þaðan hefur hún breiðst um
mest allan heim, en vitað er að hún
finnst ekki í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og
á Grænlandi.
Riðan er talin hafa borist til Íslands
með enskum hrúti af Oxfordshire
Down kyni, sem var keyptur að
Veðramóti í Skagafirði árið 1878. Þetta
er eitt besta ullarkyn sem völ er á og
stóð til að kynbæta íslenska stofninn
með þessum innflutningi. Útbreiðslan
varð mjög hæg fyrstu 75 árin og
afmörkuð við Mið-Norðurland.
Um miðja 20. öld fór riðu að verða vart
víðar um land, sem mátti oft rekja til
fjárskipta vegna annarra sjúkdóma
eða heyflutninga af riðusvæðum. Mikil
útbreiðsla komst á sjúkdóminn á
áttunda og níunda áratugnum, en
hefur hún greinst í öllum landshlutum,
nema á mjög afmörkuðum svæðum.
Riða getur ekki borist í fólk. /ÁL
Heimildir: Dýralæknatal, búfjársjúkdómar
og saga (bls. 356-366); Keldur; MAST;
Karólína Elísabetardóttir.
Riðusjúk kind. Sjúkdómurinn barst til Íslands 1878. Mynd / Úr safni
FRÆÐSLA
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Aktu á
gæðum
Hvað er ...
riða?