Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023 Í nýlegri stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt, „Land og Líf“, er lögð mikil áhersla á vistkerfisnálgun sem kemur einnig fram í nýlegum landbúnaðar- og matvæla- stefnum matvælaráðuneytisins. Að auki er vistkerfisnálgun þungamiðja í alþjóðlegum stefnum og markmiðum um umgengni við auðlindir jarðar. En hvað þýðir eiginlega vistkerfisnálgun og hvernig tengist sú nálgun starfsemi Landgræðslunnar? Vistkerfisnálgun er þegar stjórnun á notkun lands, lagar og lifandi auðlinda er samræmd og hvetur til verndunar og sjálfbærrar nýtingar með jafnrétti að leiðarljósi. Vistkerfisnálgun stuðlar þannig að jafnvægi milli verndunar vistkerfa, sjálfbærri nýtingu og jafnri deilingu ágóða. Vistkerfisnálgun leggur áherslu á að þegar við nýtum auðlindir náttúrunnar nýtum við þær á þann hátt að við sköðum ekki náttúruna eða framtíð okkar. Til þess að gera þetta þurfum við að vernda náttúruleg vistkerfi sem enn mega teljast heilleg, nýta auðlindir með sjálfbærum hætti og endurheimta þau vistkerfi sem hafa hnignað. Þó að hugtakið vistkerfisnálgun sé nýtt af nálinni samræmist það vel þeirri nálgun sem Landgræðslan hefur haft að leiðarljósi í mörg ár. Ef nýleg lög um landgræðslu eru skoðuð sést einnig að þessi nálgun er allsráðandi enda markmið laganna „að vernda, endurheimta og bæta þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands“. Landgræðslan hefur allt frá stofnun sinni árið 1907 stundað og stuðlað að endurheimt hnignaðra vistkerfa. Hér áður fyrr var áherslan á að stöðva sandfok og frekari hnignun vistkerfa en í dag hefur áherslan færst meira á endurheimt náttúrulegra vistkerfa, svo sem birkiskóga, votlendis og mólendis. Jafnframt er áhersla á að samþætta þurfi verndun og endurheimt vistkerfa við önnur umhverfismarkmið eins og baráttu gegn loftslagsbreytingum og verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Landgræðslan stuðlar að vernd og sjálfbærri nýtingu auðlinda meðal annars með ráðgjöf til landnotenda og almennri fræðslu. Lykilatriði í vistkerfisnálgun er samráð og þátttökunálganir. Landgræðslan hefur í gegnum árin starfað náið með landnotendum og landeigendum, m.a. í verkefnum eins og Bændur græða landið, Landbótasjóði og í GróLind. Landgræðslan starfar einnig með ríki og sveitarfélögum, veitir ráðgjöf, skrifar umsagnir um skipulagsmál og vinnur við svæðisáætlanir í landgræðslu. Vöktun og rannsóknir er mikilvægur hluti af vistkerfisnálgun, ef við ætlum að geta stýrt nýtingu á sjálfbæran hátt verðum við að skilja betur þær auðlindir sem við nýtum og fylgjast með hvaða áhrif aðgerðir okkar hafa, hvort sem það er beitarnýting eða uppgræðslur. Þannig lærum við og getum aðlagað aðgerðir okkar eftir því. Rannsóknir og vöktun eru þannig grunnurinn að vönduðum og markvissum vinnubrögðum. Fimmtudaginn 21. september tekur Landgræðslan þátt í málþingi á vegum matvælaráðuneytisins og Biodice um Vistkerfisnálgun í umgengi við og nýtingu náttúru Íslands. Málþinginu verður streymt beint og hægt verður að hlusta á upptökur eftir á. Ég hvet öll sem hafa tök á að hlusta – til að fræðast meira um þessa nálgun sem við sem nýtum landið ættum að hafa að leiðarljósi. Bryndís Marteinsdóttir, sviðsstjóri á sviði sjálfbærni og loftslags LANDGRÆÐSLA Hvað er vistkerfisnálgun? Starfsfólk við feltvinnu og rannsóknir. Búnaður sem notaður er við gas- mælingar í votlendi. Espihóll, Eyjafjarðarsveit - auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27. júní 2023 að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu vegna breytingar á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 og vegna nýs deiliskipulags fyrir fyrirhugað íbúðarhús á lóðinni Espilaut á landareigninni Espihóli, í auglýsingu skv. 31. gr. og 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin lýtur að því að nýtt 1,5 ha svæði verði skilgreint sem íbúðarsvæði þar sem nú er skilgreint landbúnaðarsvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030. Skipulagsverkefnið snýr að skipulagi lóðar fyrir íbúðarhús á óræktuðu landi. Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 21. september og 2. nóvember 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugsemdir við skipulagstillögurnar til fimmtudagsins 2. nóvember 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is. Skipulagsfulltrúi Kostnaður við dýralæknaþjónustu í örsláturhúsum getur hækkað fyrirvaralaust. Skýr svör vantar frá ráðuneyti. Í reglugerð um heimaslátrun er tekið fram að ríkissjóður greiði kostnað við eftirlit dýralæknis, en ráðherra geti breytt þeirri grein með skömmum fyrirvara. Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir, bóndi í Birkihlíð, segist hafa sent fyrirspurn á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra um framtíð þessarar reglugerðargreinar og fékk þau svör að ekki standi til að gera breytingar „að svo stöddu“, sem hún segir of óljóst. „Að svo stöddu“ geti þýtt svo margt og finnst henni í raun ótrúlegt að það sé yfir höfuð verið að hugsa um að taka þetta út. Kristján Þór Júlíusson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, hafi sett þessa grein inn óumbeðinn, svo umhugað var honum að hjálpa bændum, segir Ragnheiður. Þó svo að kostnaður við dýralæknaþjónustu Matvælastofnunar (MAST) sé greiddur af hinu opinbera, þá er hún gagnrýnin á að reikningarnir sem sendir eru ríkissjóði séu ekki bornir undir þau. Þau viti því ekki hversu margir tímar eru skrifaðir fyrir eftirlit hjá þeim. Í nokkur ár hefur bændum verið heimilt að stunda heimaslátrun og selja sínar vörur, að undangengnum ýmsum skilyrðum. Enn sem komið er hafa einungis tveir bæir nýtt sér þessa heimild, Birkihlíð í Skagafirði og Grímsstaðir í Borgarfirði. Rafrænt eftirlit hagkvæm lausn Ragnheiður sendi einnig erindi á ráðuneytið þar sem hún vill skoða möguleikann á að stunda rafrænt eftirlit með heimaslátrun. Þar með tækist að halda kostnaði niðri og dýralæknar hefðu möguleika á að fylgjast með fleiri slátrunum á skemmri tíma. Svarið sem hún fékk var á þá leið að rafrænt eftirlit rúmist ekki innan löggjafarinnar og var vísað til reglugerða frá Evrópusambandinu (ESB). Ráðuneytinu sé kunnugt um stefnumótunarvinnu á vettvangi ESB sem miði að þróun í þessum málum og sé fylgst vel með því Takmarkanir geti fylgt því að dýralæknir þurfi alltaf að mæta á staðinn eins og staðan er núna. Ragnheiður nefnir tilvik þar sem dýralæknirinn hafi tafist þegar þau áttu að hefja slátrun. „Við þurftum að bíða í einn og hálfan klukkutíma með okkar menn og við máttum ekki byrja þar sem hann var ekki búinn að leggja blessun sína yfir lifandi lömbin. Þá dróst allt og við sátum bara þarna,“ segir Ragnheiður. Einnig sé rétt að spyrja þeirrar spurningar hvort þörf sé á svo miklu eftirliti, því Ragnheiður segir bændur hafa orðsporið að veði. Þeir hafi því engan hag af því að setja vörur á markað sem komi af sýktum dýrum. „En ESB stjórnar nú bara ýmsu hér á landi.“ Kjötvinnslan ber sig Uppbyggingin sé kostnaðarsöm en á móti hafi veltan aukist á búinu. ,,Við fengum styrk frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins þegar við vorum að byggja upp okkar kjötvinnslu og munaði um það,“ segir Ragnheiður. Nú sé þessi sjóður ekki til í sömu mynd, sem henni þykir missir. Kjötvinnslunni fylgir mikil vinna, en Ragnheiður spyr hvort ekki sé betra að minnka vinnu utan bús til að geta sinnt sinni framleiðslu frá upphafi til enda. Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir og Þröstur Heiðar Erlingsson, bændur í Birkihlíð. Myndir / Aðsendar Heimaslátrun: Kallað eftir rafrænu eftirliti Í DEIGLUNNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.