Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Rætt var um hvenær væri
tímabært að grisja og hve mikið fleira
eftir því. Allt veltur þetta á tilgangnum
með ræktuninni en ef ætlunin er að
hafa skóginn bæði til að rækta gagnvið
en ekki síður að njóta hans er ekkert
sem á að stoppa bændur við að snyrta
skóginn vel. Agnes og fjölskylda
hafa verið dugleg að tvítoppaklippa
og uppkvista trén í skóginum enda
ákaflega opinn og fallegur. Einnig var
rætt um tegundaval og íbætur.
Til gamans má geta að fjölskylda
Agnesar var töluvert á undan sinni
samtíð þegar þau hófu skógrækt í
sveitinni. Það leit heldur illa út við
fyrstu lerkigróðursetningarnar 1988 en
lifun þótti ekki ýkja góð. Fyrir einhverja
rælni ákváðu ráðgjafar að hafa stafafuru
með á stöku stað og má segja að það
hafi verið galdurinn. Upp frá furunni
eru nú stærstu trén á Galtarlæk.
Heimilisfólkið hefur ýmislegt fyrir
stafni í skóginum. Þau hafa ræktað
býflugur með góðum árangri í rúman
áratug enda njóta býflugur sín vel í vel
hirtum og blómlegum skóginum.
Að lokinni göngu var boðið upp
á kleinur og ketilkaffi við opinn
eld enda fátt notalegra. Nokkrir
tóku til máls og þar á meðal sagði
Hrefna Jóhannesdóttir, sviðsstjóri
bændaskógræktar hjá Skógræktinni,
frá ýmsum áformum hjá þeim.
Áhugi á skógrækt hefur sjaldan verið
meiri og er allt útlit fyrir stórauknar
gróðursetningar næstu árin.
Auk þeirra verður að sinna umhirðu
og sinna þeim skógum sem vaxa vítt
og breitt um landið.
Óhætt er að segja að skógarnir
á Suðurlandi vaxi og dafni. Að líta
yfir afrakstur frumkvöðlanna er
uppörvandi og má segja að þessi stund
með skógarbændum þennan fallega
miðvikudag hafi verið degi vel varið.
Skógar eru svo sannarlega komnir til
að vera; nú og til framtíðar.
Gengið og rætt um afurðir skóga í Hrosshaga.
Við upphaf fræðslustígsins í Hrosshaga.
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU, VESTFJÖRÐUM OG SUÐURLANDI
Barnaverndarmál, forsjármál, hjónaskilnaðir,
sambúðarslit, kaupmálar, erfðaskrár,
seta í óskiptu búi og dánarbússkipti.
Skaðabótaréttur og réttarstaða ýmissa aðila
vegna tjóns af FISKELDI.
Tímapantanir nauðsynlegar í síma 777 5729 og
á netfangið thuridurhalldorsdottir@gmail.com.
Fyrsti tími að kostnaðarlausu.
Þuríður Halldórsdóttir lögmaður
Eco&LawConsult ehf
s. 777 5729
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á
www.bilanaust.is
BETRA AÐ EIGA EN VANTA!
VAKTARAR - TALSTÖÐVAR - HÖFUÐLJÓS - BÆTIEFNI