Bændablaðið - 21.09.2023, Qupperneq 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
LESENDARÝNI
Þúsund tonna kornþurrkstöð í Eyjafirði of lítil
Í vor vann ég lokaverkefni mitt í
búvísindum við Landbúnaðar
háskóla Íslands. Fjarðakorn, korn
ræktarfélag í Eyjafirði kom með
hugmynd að verkefni sem var að
skoða fýsileika og hagkvæmni þess
að reisa kornþurrkstöð í Eyjafirði.
Áhugi á eflingu
kornræktar hefur
aukist að undan
förnu, bæði meðal
bænda og ráða
manna, en inn
viðir fyrir greinina
eru takmarkaðir.
Rakastig korn
tegunda við
þreskingu er oft of hátt fyrir
langtímageymslu. Á Íslandi er korn
oft skorið við 25–40% rakastig en
hámarks rakastig korns svo það sé
geymsluhæft í eitt ár er 14,5%.
Með því að fjarlægja vatnið úr
korninu, lækkar vatnsvirkni þess
og örverur geta því ekki vaxið og
spillt korninu. Einnig er hægt að
votverka korn en meirihluti af korni
á Íslandi er votverkaður (60%).
Votverkun hentar þó ekki til dæmis í
kjarnfóður og matvælaframleiðslu en
til þeirrar notkunar þarf að þurrka það.
Kornþurrkun fer fram með því streyma
miklu magni af lofti um kornið. Hægt
er að stytta þurrktímann bæði með
því að hækka hitastig loftsins sem
blásið er um kornið og með auknum
blásturshraða. Of hátt hitastig loftsins
getur hins vegar skemmt kornið og
dregið úr spírunarhæfni þess. Bæði er
hægt að nota olíu og gas til að hækka
hitastig þurrkunarloftsins.
Á Íslandi er víða að finna heitt vatn
sem má nýta til þurrkunar á korni og
getur verið talsvert ódýrara heldur en
að nota til að mynda olíu. Þurrkun
korns er ein orkufrekasta aðgerð
landbúnaðar í löndum tempraða
beltisins. Í byggræktun í Finnlandi
er þurrkun um 30% af beinum
orkukostnaði framleiðslunnar. Þrátt
fyrir það er þurrkun korns mest notaða
verkunaraðferðin í Finnlandi og er um
85–90% af kornuppskerunni þurrkuð.
Kornþurrkarar
Þegar það kemur að vali á
kornþurrkara þarf að hafa í huga
að þurrkarinn nái að anna afköstum
þreskivélanna. Að hafa tækja
og mannafla aðgerðalausan er
kostnaðarsamt sem, eðli málsins
samkvæmt, tefur kornskurðinn.
Hægt er að flokka kornþurrkara
í gerðir eftir uppbyggingu og
virkni þeirra. Þannig má skipta
þeim í lotuþurrkara (e. batch
load), gegnumstreymisþurrkara
(e. continuousflow) og hringrásar
lotuþurrkara (e. recirculating dryers).
Í gegnumstreymisþurrkurum er korni
dælt í gegnum þurrkarann og það
þurrkað samstundis. Þetta er afar
orkufrek aðferð til að þurrka korn en
helsti kostur þessara þurrkara er sá að
hann getur tekið við miklu magni af
korni á stuttum tíma. Einhver hætta
er á skemmdum á korninu sökum
þess hve hröð þurrkunin er en hægt
er að koma í veg fyrir það með réttum
stjórnunarháttum. Lotuþurrkarar virka
þannig að ákveðinn kornskammtur er
settur inn í þurrkarann og sá skammtur
þurrkaður í einni lotu. Tíminn sem fer
í að fylla og tæma þurrkarann nýtist
ekki til þurrkunar og þurrkunin getur
orðið ójöfn þar sem kornið sem er
næst loftinntakinu þornar meira en
kornið sem er fjær því.
Hringrásarlotuþurrkarar eru síðan
í raun blanda af lotuþurrkara og
gegnumstreymisþurrkara. Þeir virka
þannig að kornið sem er á botninum er
flutt með snigli, lyftu eða sambærilegu
efst í sílóið. Með því að halda
korninu á hreyfingu í þurrkaranum
verður rakastig, þurrkaða kornsins
einsleitara. Hringrásin á korninu er
sérstaklega þörf þar sem rakastig
korns við uppskeru er mismunandi.
Í NorðurEvrópu er þetta algegnasta
gerð þurrkara.
Eyfirðingar ættu að huga að
stækkanlegri 2.000 tonna stöð
Verkefnið mitt var tilviksrannsókn.
Tilviksrannsókn er fræðileg athugun á
tilteknu máli, manneskju, hóp eða atviki
í raunverulegum kringumstæðum. Þó
það sé ekki hægt að draga almenna
ályktun um uppsetningu þurrkstöðva
út frá verkefninu, má hugsanlega
nýta svipaðar aðferðir og notaðar
voru í verkefninu til að skoða önnur
sambærileg atvik.
Markmið verkefnisins var að
kanna fýsileika og hagkvæmni
kornþurrkstöðvar í Eyjafirði.
Kornræktendum í Eyjafirði hefur
þó einnig verið boðið að þurrka
korn sitt í graskögglaverksmiðju við
Húsavík sem til stendur að reisa.
Viðbót við verkefnið var því að meta
flutningskostnað bæði fyrir þurrkstöð
í Eyjafirði og Þingeyjarsveit og bera
saman. Unnið var út frá sviðsmynd
núverandi ræktunar og einnig
hámarksræktun ef uppbygging til
kornræktar tækist vel.
Spurningalisti var sendur út á
kornræktendur í Eyjafirði meðal
annars til að finna út núverandi ræktun.
Þeir bændur, sem sögðust myndu nýta
sér þurrkarann yrði hann reistur, rækta
um 1.250 tonn.
Sömu bændur myndu rækta að
hámarki um 2700 tonn ef uppbygging
kornræktar tekst vel til. Ríflega 60% af
þeim sem svöruðu spurningalistanum
voru tilbúnir að leggja til hlutafé í
stöðina. Flutningskostnaður við að
flytja korn til og frá Húsavíkur voru
um 5,9 kr/kg samanborið við 2,3 kr/kg
ef kornið var flutt að SyðraLaugalandi
í Eyjafirði þar sem ný kornþurrkstöð
yrði líklega reist ef til kæmi. Þó er
hagkvæmara að flytja kornið til
Húsavíkur heldur en að þurrka það í
1.000 tonna stöð á SyðraLaugalandi
vegna lægri þurrkkostnaðar í
graskögglaverksmiðjunni.
Hins vegar er 2.500 tonna stöð í
Eyjafirði hagkvæmari heldur en að
flytja kornið til Húsavíkur en miðað
við núverandi framleiðslu væri ekki
hægt að fullnýta þá stöð.
Hægt er að lesa verkefnið í heild
sinni sem og önnur áhugaverð
lokaverkefni nemenda Landbúnaðar
háskóla Íslands inni á skemman.is,
safni námsritgerða og rannsóknarita.
Oddleifur Eiríksson, höfundur
Helgi Eyleifur Þorvaldsson, leiðbeinandi
Oddleifur
Eiríksson.
Bíóhúsið á Selfossi var troðfullt af
fólki sunnudagskvöldið 10. sept.
sl. þar sem fram fór frumsýning
á kvikmyndinni Konungur
fjallanna. Kristinn Guðnason,
fjallkóngur á Landmanna afrétti,
lét gesti sína bíða eftir sér eins og
alvöru kvik mynda stjarna.
Mikil eftir
vænting lá
í loftinu og
smalar og vinir
fjallmannanna
voru mættir.
Ekkert er jafn
heillandi eins
og göngur og
réttir á haustin.
Myndin fangaði
vel ævintýrið um líf og starf
sauðfjárbóndans frá sauðburði
til rétta. En hæst reis myndin við
smalamennsku í einu fegursta fjalllendi
Íslands inn við Landmannalaugar og
Hekla er drottning öræfanna þar sem
fjallkóngurinn Kristinn Guðnason
stýrir liði sínu til smalamennsku.
Myndin sýnir vel töfra íslenskrar
náttúru, þar sem smalinn fer um
fjöll og firnindi, sundríður ár og
rekur lagðprúða hjörðina til rétta.
Fjallkóngurinn er sögumaður
myndarinnar. Þar bregst Kristinn
ekki, af hógværð og festu segir hann
söguna. Kristinn er sannur bóndi
og rekur af tilfinningu, þann unað
sem smalamennskur, sauðkindin
og hesturinn gefur bóndanum.
Hann ann afrétti sínum og í 42
ár hefur hann stýrt liði sínu og
farið í smalaferðir í ein sextíu ár.
Gestir kóngsins og smalanna eru
svo fólk frá mörgum þjóðlöndum,
margir koma aftur haust eftir
haust. Hver sá sem horfir á þessa
mynd skilur á eftir hvílík menning
er fólgin í smalamennskum um
afrétti landsins. Hestar og menn
svitna saman og gleðin yfirgnæfir
allt erfiði. Myndinni er leikstýrt af
Arnari Þórissyni og framleiðendur
myndarinnar eru Áslaug Pálsdóttir
og Guðrún Hergils Valdimarsdóttir.
Tónlist er í höndum Úlfs Eldjárn
og hljóð Péturs Einarssonar. Þessa
kvikmynd verða allir að horfa
á og hana ætti að sýna í skólum
landsins. Myndin er ákall um forna
og nýja menningu og landbúnað
sem er einstakur á veraldarvísu.
Ég skora á Sunnlendinga að njóta
kvikmyndarinnar Konungur fjallanna
í Bíóhúsinu á Selfossi næstu vikur.
Enn fremur verður hún sýnd í
Laugarásbíói í Reykjavík. Myndin
kallar á fjölskylduferð í bíó.
Guðni Ágústsson
Guðni
Ágústsson.
Kvikmyndin Konungur fjallanna Opið bréf til forsætisráðherra
Nú styttist í jólin og í nýtt ár. Í
landinu okkar eins og öðrum
löndum um heiminn er fólk
með ólæknandi sjúkdóma, bæði
líkamlega og andlega sjúkdóma.
Þessir sjúkdómar sem ég er að
tala um er til að mynda krabbamein í
sínum mörgum myndum, flogaveiki,
MS, Alzheimer, MND, geðklofi,
geðhvarfasýki, einhverfa, offita,
hjartasjúkdómar og lömun svo eitthvað
sé nefnt. Þetta fólk getur ekki unnið og
verður að reiða sig á ríkið til að halda
húsi yfir höfði sér og mat ofan í sjálft
sig og fjölskyldu sína.
En málið er að 270 til 290 þúsund
eða minna getur engan veginn hjálpað
þessu fólki á mánuði nema að borga
hluta af reikningum sínum, þegar það
er búið að borga 150 þúsund til 200+ í
leigu. Það er mikil fátækt á Íslandi og
því miður er Ísland ekki besta landið
lengur í heiminum á okkar tímum. En
ríkisstjórnin virðist loka augunum fyrir
fátækt og erfiðleikum bæði öryrkja og
eldri borgara og velja að horfa í hina
áttina og gleyma okkur. Já, ég er líka
á örorkubótum vegna flogaveiki og
móðir mín vegna krabbameins.
Ég er með spurningar til þín,
Katrín.
Ætlar þú og ríkisstjórnin að gera
eitthvað í desember fyrir öryrkja?
Hversu mikil verður hækkunin á
örorkubótum í janúar 2024?
Mig langar til að fá að draga upp
mynd af einum aðstæðum öryrkja.
Ímyndaðu þér einstæðu feðurna þar
sem lögheimilið er hjá barnsmóður eða
öfugt. Þeir eða þær fá ekkert frá ríkinu
með börnunum sínum. Öryrkjar með
þrjú börn jafnvel, eins og svo algengt
er í dag. Hvernig gengur það upp?
Svarið er að það gengur ekki upp.
Hvenær fá öryrkjar að vera
áhyggjulausir? Kvíðalausir, lausir
við ótta um að missa allt og lenda
á götunni því ríkið vill ekki hjálpa
þeim? Ég tók bensín á bílinn fyrir 5
þúsund og fékk 15 lítra. En það er svo
sem ekkert miðað við matvöruverð,
afborganir af leigu, húsnæðislánum
og/eða öðru.
Það er bersýnilegt að í augum
ríkisstjórnar Íslands eru öryrkjar þriðja
flokks borgarar. Eða það er allavega
upplifun margra okkar. Ég verð bara
að vera pínu beinskeyttur við þig,
Katrín, því ég hef bara heyrt orð en
ekki séð nein verk í þágu öryrkja og
eldri borgara.
Öryrkjar þurfa að staðfesta
reglulega til Tryggingastofnunar að
þeir séu enn þá lamaðir, enn þá með
MS og flogaveiki til að fá krónurnar
sínar frá ríkinu.
Staðreyndin er sú að miðað við
hækkun matvara í landinu, bensíns,
leigu og alls annars að þá þurfa öryrkjar
lágmark 450 til 500 þúsund á mánuði
til að eiga fyrir leigu, afborgunum,
mat og öðru út mánuðinn. Öryrkjar
og allt fólkið í landinu er á dýrasta
leigumarkaði sem ég hef fundið miðað
við önnur lönd.
Stendur þú enn þá fyrir jöfnuði,
Katrín? Er þetta velferðarkerfi sem
við búum í?
Ertu til í að gera eitt fyrir mig?
Hugsaðu þegar þú gekkst fyrst inn á
þing. Hverjar voru hugsjónir þínar þá?
Hverju vildir þú virkilega breyta og
gera betra?
Mínar hugsjónir eru allavega ,,Einn
fyrir alla og allir fyrir einn. Jöfnuður.
Velferðarríki.
Ertu enn þá vinstri græn? Ertu kona
fólksins í landinu? Þá meina ég alls
fólksins í landinu. Ekki bara þá sem
eiga stór ítök í bönkunum og tengjast
stórum og sterkum fjölskylduböndum.
Inga Sæland alþingiskona hefur
gert hvað eitt mest fyrir aldraða og
öryrkja í landinu. Hún er stórkostlegasti
alþingismaður síðasta áratugar í sögu
Íslands. Það munu allir muna eftir
henni löngu eftir að hún kveður þetta
jarðlíf því hún er samkvæm sjálfri sér
og stendur við orð sín þó margir reyni
að berjast á móti henni. Inga Sæland
er sjálfri sér trú og fólkinu í landinu.
Ég bið þig innilega að taka hana til
fyrirmyndar og hjálpa fólkinu í landinu
sem þarf á því að halda, Katrín. Því
þetta fólk, Katrín, reiðir sig allt á þig
og ríkisstjórn Íslands. Þú bókstaflega,
ásamt Alþingi, hefur líf okkar og
lífsgæði í höndum þar.
Virðingarfyllst,
Gísli Hvanndal Jakobsson,
tveggja barna faðir,
með sjúkdóminn flogaveiki.
Dagbjört Gísladóttir
og Gísli Hvanndal Jakobsson.