Úrval - 01.08.1963, Side 99
ANTONÍUS OG KLEOPATRA
111
! henni hlyti að ljúka með ósigri
þeirra Antoniusar. Ef til vill
áleit hún, að nú væri kominn
i tími til skipulags flótta, sem
hún hafði þegar ákveðið, áður
en orrustan hófst, áleit, að nú
ættu þau að hörfa undan með
lið sitt inn á sitt eigið yfirráða-
svæði, svo að þau gætu skipu-
lagt iiðið að nýju og hafið aðra
árás, er ekkert fengi staðizt. Ef
til vill misskildu liðsmennirnir
fyrirskipanir og merkin í upp-
námi þessarar óskipulegu viður-
eignar.
En hvernig svo sem því kann
nú aö hafa verið farið, yfirgaf
Kleopatra samt orrustuna ásamt
60 skipum sínum og flúði suð-
ur með ströndinni í áttina til
Alexandríu.
Antoníus sá hana flýja. Hann
vissi, að honum bæri nú að
eggja menn sína lögeggjan, svo
að honum tækist að vinna orr-
ustuna og ná heimsyfirráðum,
enda þótt hann nyti ekki leng-
ur liðsafla hennar við. Hann
skildi, hvað sönnum hermanni
bæri að gera, en hann skildi það
einnig, að Kleopatra var nú að
yfirgefa hann.
Antoníus lét skip sitt snúa við
og lagði á flótta, elti konuna,
sem hann unni svo heitt. Og
honum tókst að leyna þessu
fyrir liðinu á stærstu skipun-
um.
Floti hans hélt bardaganum
áfram. Að nokkrum tíma liðn-
uin gerðu yfirmenn hans sér
grein fyrir því, að leiötogi
þeirra var flúinn og að nú var
ekki lengur um neina eiginteg'a
yfirstjórn flotans að ræða. En
samt héldu þeir bardaganum
áfram. En eldmóðurinn var
horfinn, og að lokum var skip-
um þeirra eytt með cldi.
Antoníusi og Kleopötru tókst
að endurskipuleggja lið sitt i
Alexandriu, og stríðið hélt
áfram í tvö ár í viöbót. Olcta-
vianus sótti stööugt nær þeim,
en herflutningar tóku lengri
tima þá en nú.
Tvær orrustur voru háðar ná-
lægt Alexandríu. Oktavíanus
sigraði og hélt innreið sina i
borgina ásamt liðssveitum sin-
um, líkt og Júlíus Cæsar hafði
gert á undan honum. Antoníus
og' Kleopatra sáu nú draum
sinn um austurlenzkt keisara-
dæmi verða að liismi einu.
Ivleopötru kom þá ráð í hug.
Nú var hún orðin 37 ára göm-
ul, en töfrar þeir, sem voru
henni haldbeztir, gátu auðveld-
iega náð æskilegum áhrifum,
þótt æskan væri eigi lengur fyr-
ir hendi. Hún ákvað að ná
Oktavíanusi á sitt vald.
Oktavíanus átti sér aðeins eitt
inarkmið, að gersigra síðasta