Úrval - 01.08.1963, Side 130
142
Ú R V A L
að gerast allt of áhyggjufullur
vegna þess arna? Sko, ég er
dauðhræddur um, að þessi sjón-
varpssending ykkar verði allt
of viðkvæmnisleg. Ég vil ekki
sjá né heyra neitt um „kvala-
stríð hins deyjandi læknis.“
„Læknir, þér hafið leyft okk-
ur að eiga viðtal við yður
kvöldið fyrir mjög alvarlegan
uppskurð, som gera skal á yður.
Hvers vegna?“
„Því verð ég ekki lengi að
svara,“ sagði Dooley. „Hér í
Bandaríkjunum ríkir geysileg
fáfræði um krabbameinið, á
svipaðan hátt og fáfræði ríkir
á mörgum sviðum í ])orpinu
mínu austur i Laos, þar sem
fólkið trúir á galdra og særing-
ar. Þegar fólk sér þessa sjón-
varpsmynd og veit, að Dooley er
með krahbamein, verður það
kannske ekki alveg eins ofsa-
hrætt við orðið „krabbamein"
og áður . . . Og í öðru lagi vil
ég ræða við ykkur um félags-
skapinn „Medico" og lýsa þvi,
hvernig við í „Medico“ erum
að reyna að senda lækna, hjúkr-
unarkonur og annað aðstoðar-
fólk til hinna yztu endimarka
heimsins til hjálpar sjúkum. Ég
,ætla að leyfa ykkur að taka
myndir af mér innst sem yzt,
vegna þess að þannig fæ ég
kannske tækifæri til þess að
segja Bandaríkjamönnum frá
því um leið, að „Medico“ þarfn-
ast hjálpar þeirra . . . Af þess-
um ástæðum eruð þið hjartan-
lega velkomnir í sjúkrastofu nr.
910 í kvöld.“
Og myndavélin og hljóðnem-
inn náðu þessu öllu. Þennan
mann þurfti ekki að hvetja. Hon-
um þurfti eigi að segja til.
Næsta morgun var fyrri upp-
skurðurinn af tveim gerður á
Dooley. .4 sérstökum áhorfenda-
'svölum, umkringdum gleri, var
myndatökuvélunum komið fyr-
ir, og með sérstökum langdræg-
um linsum gátu þær i rauninni
„gægzt“ yfir öxl skurðlæknis-
ins og myndað hvert smáatriði.
Dr. Henry T. Randall, yfirlækn-
ir sjúkrahússins, útskýrði upp-
skurðinn fyrir Smith blaða-
manni.
Það voru ekki alveg 60 dagar
síðan hið upprunalega krabba-
meinsæxli, þessi „einkennilegi,
svarti vöxtur“, hafði verið skor-
inn úr brjósti þessa 32 ára gamla
læknis rétt fyrir neðan öxlina.
Það hafði verið gert austur í
Laos. Nú hafði myndazt dálítil
bólga neðan til á bringunni.
„Við getum ekki verið vissir
um, hvort þessir hnúðar eru
krabbameinskenndir,“ sagði dr.
Randall. „Hafi krabbameinið
dreifzt alla leið hingað niður,
þá er sjúkdómurinn kominn svo
langt, að það er eigi lengur hægt