Úrval - 01.08.1963, Page 161
RÁÐ TIL ÞESS AÐ AFVENJAST TÓBAKINU
173
lungu þín, kolsýrlingur, svo-
litið magn af hydrocyanicsýru,
pyridine og ýmis phenol og
aldehýd. Sumt af þessu verður
eftir í munni þínum. Og við
áhrif þessara efna tekur ýmis-
legt að gerast í líkama þínum.
Taugakerfi þitt örvast sem
snöggvast, blóðþrýstingurinn
hækkar og æðaslátturinn verð-
ur örari.
En hið mikilvægasta er samt,
að æðar þínar dragast saman.
hetta verður til þess að „hægja
á þér“ á allan hátt í raun og
veru, þ. e. a. s. eftir augnabliks-
örvunina hefur tóbakið sljóvg-
andi áhrif á sjálfráða og ósjálf-
ráða taugakerfið og i miklu
lengri tíma en örvunin stóð.
Þetta merkir, að þegar þú
reykir, ertu að draga úr eðli-
lcgri líkamsstarfsemi þinni á
óeðlilegan hátt. Við skulum
gera ráð fyrir þvi, að þú verðir
fyrir einhverju sálrænu álagi,
sem veldur skyndilegu tilfinn-
ingalegu uppnámi. Þá er efninu
adrealin dælt út í blóðrásar-
kerfi þitt, vöðvar þínir verða
spenntir, þú andar hraðar og
verður taugaóstyrkari en ella.
Tóbaksreykur dregur úr þess-
um eðlilegu likamsbreytingum
með því að gera blóðrásina
hægari og „róar þig þannig“.
Þú finnur, að reykurinn „er
góður fyrir taugar þínar“.
Væri ekki um annað að ræða,
væri ekki nein ástæða til þess
að ala með sér áhyggjur. Ef þú
reyktir þannig aðeins, þegar þú
verður fyrir einhverju sálrænu
álagi, og ekki væri um nein
eftirköst önnur að ræða, hefð-
irðu kannske ekki slæmt ai'
reykingum. En tóbaksáhrifin
eru enn flóknari en þetta.
Ef þú reykir hálfan annan
pakka á dag, reykirðu að meðal-
tali einn vindling á liverjum 32
mínútum, og er þá svefntiminn
auðvitað ekki reiknaður með.
Þú verður ekki svo oft fyrir
einhverju sérstöku sálrænu á-
lagi daglega. Þú þarfnast vindl-
inganna eingöngu vegna þess,
að líkami þinn er farinn að
vænta slíkra sljóvgandi áhrifa
með tíðu millibili. Finnir þú
ekki til slíkra áhrifa, verðurðu
þér þess meðvitandi, að þig
fer að langa í vindling. Þér
líður illa, ef þú færð hann ekki.
Það fylgir lítil ánægja reyk-
ingum, þangað til þér hefur tek-
izt að venja likama þinn svo
skilyröislaust við tóbakið, að
líkami þinn sættir sig við liið
beiska bragð og liið heita, þurra
loft, allt vegna hinna deyfandi
áhrifa þess. Væri mögulegt fyr-
ir þig að neita þér um vindling
í t. d. einn sólarhring, myndirðu
finna, hversu vont og óþægilegt
tóbakið er á bragðið, ef þú