Úrval - 01.08.1963, Qupperneq 163
RÁn TIL ÞESS AÐ AFVENJAST TÓBAKINU
175
Og í rauninni muntu alls
ekki vertia eins taugaóstyrkur.
Því er erfitt að trúa. AS vísu
muntu verða taugaóstyrkur.
fyrstu reyldausu dagana. Hin
sljógvandi áhrif, sem reikingar-
nar hafa haft á iíkama þinn
árum saman, hætta snögglega,
og hin ókennilegu áhrif þess
eru mjög sterk. Ef til vill muntu
verða örari, hlæja að smámun-
um og verða svolítið taugaó-
styrkur um tíma og ef til vill
uppstökkur. En smám saman
dregur úr taugaóstyrknum. Þeg-
ar þú hefur yfirnnnið hann,
muntu verða hissa á þvi, hvers
konar atburðum þú getur mætt,
hvers konar sálrænt álag þú
þolir án þess að grípa til vindl-
ingsins.
Þú verður rólegri, og ef til
vill finnst þér nú, að ]jað séu
fleiri stundir i sólarhringnum,
því að þegar þú hættir að
sljóvga likamsstarfsemina og
draga úr orku þinni með tóbak-
inu, muntu finna, að þú hefur
miklu meiri orku en þú áleizt.
Nú virðist vera meiri tími til
þess að afkasta ýmsu.
Nú vil eg mæla nokkur orð
i varnaðarskyni. Venjulega er
álitið, að reykingamaður, sem
hættir við tóbakið, fitni og þyng-
ist. Sértu hæfilega feitur eða
jafnvel of grannur, þarftu ekk-
ert að óttast. En sé mittismálið
helzt til hátt og eigir þú erfitt
með að halda því innan hæfi-
iegra takmarka, skaltu muna
þetta: þegar þú hættir að reykja
muntu liklega fitna. Hafðu eng-
ar áhyggjur af því. Þú skalt
bara horfast í augu við það. í
rauninni muntu ekki fitna nema
um nokkur pund, því að þegar
þú hættir að reykja, mun orka
þín vaxa mikið, og þegar þú
ferð að nota þessa viðbótar-
orku, muntu brenna upp miklu
af viðbótarþyngdinni.
Hafir þú komizt þetta langt
í lestri greinarinnar, heldurðu
líklega, að þú sért reiðubúinn
að sverja þess dýran eið að
hætta öllum reykingum. Það
skaltu samt ekki gera. Þii skalt
hugsa um þetta fyrst um sinn,
bæði á daginn og sem snöggv-
ast, áður en þú ferð að sofa.
Þú skalt hugsa eitthvað á þessa
leið, líkt og leitandi og hikandi:
Einhvern duginn, þegar mér
finnst ég muni geta það, ætla
ég kannske að reyna að vera
án tóbaksins og sjá, hvað gerist.
fiy ætla bara að gera þessa til-
raun til þess að fá svolitla til-
breytingu i daglegt líf mitt. .
Bíddu svo þangað til allt virð-
ist leikailyndi einhvern daginn.
Gerðu ekki þessa tilraun, þegar
þú ert að leggja af stað í þýð-
ingarmikla ferð, húa þig undir
að fara í mikia veizlu eða í