Úrval - 01.08.1963, Blaðsíða 169
181
,,LASER-TÆKIГ . . .
við körfubolta. Hópur lijá
M. I. T. og Raytheon Co. í Lex-
ington, Mass, beindi svipuðu
tœki á dimmt tunglið: glampinn
lýsti upp hringmyndað svæði á
yfirborði tunglsins, og svæði
lxdta var tvær milur i bverinál!
Vísindamennirnir segja, að
l>að gefi frá sér „samræmdar
eða sainloðandi ljósbylgjur".
Sérfræðingar hersins segja, að
það framleiði „orku til linit-
miðunar", og spá því, að hægt
muni verða að nota það til þess
að finna flugskeyti óvina og eyða
þeim tafarlaust. Tæknibylting
sú, sem tæki þetta kann að hafa
í för með sér, mun ef til vill
verða risavaxnari en sú, sem rat-
sjáin, „transistorarnir", sjón-
varpið og gervihnattanjósnanet-
ið höfðu í för með sér.
Nafn tækisins er búið til úr
upphafsstöfum skilgreiningar-
innar á tæki þessu, þ. e. „Light
Amplification by Stimulated
Emission of Radiation“ (Ljós-
mögnun með örvun geislunar).
í venjulegri birtu beina frum-
eindirnar geislum sínum tilvilj-
unarkennt í allar áttir. En tæki
þetta neyðir frumeindirnar til
að beina geislun sinni „í fasa“,
þannig að það myndast mjög
mjór samgeisli, sem magnast
ofsalega. Sé þessi geisli hnit-
miðaður að vissum depli, mun
liann flytja ofurmagnaða birtu
geysilegar vegalengdar.
Innsti kjarni þessa nýtízku
Alladínslampa er annað hvort
nokkurs konar stöng úr tilbún-
uni roðasteini eða rör, fyllt ein-
hverri lireyfingarlausri gasteg-
und, svo sein helium eða kryp-
ton.. Tvö þúsund vísindamenn
vinna nú að fullkomnum tækis
þessa í samtals 400 rannsókna-
stofum.
Curtis E. LeMay, yfirmaður
flugliðs Bandaríkjanna, álítur,
að að tæki þetta muni geta á ný
skapað jafnvægi milli sóknar og
varnar. „Orkan, sem þessi vopn
(,,laser“) geisla frá sér, gæti
þotið um geiminn með hraða
sólarljóssins. Þetta myndi verða
ómetanleg hjálp lil þess að finna
flugskeyti og ráða niðurlögum
þeirra.“
Höfundar geimferðasagna
liafa oft talað um „dauðageisla"
sem raunverulega staðreynd í
sögum sínum. Nú er landher-
iiin einmitt að athuga, hvort hér
sé slíkt tæki ekki einmitt kom-
ið fram. Slílc dauðageislabyssa
yrði ekki stærri en venjuleg
byssa. Verkfræðingar eru að
gera tilraunir með vopn, sem
ætlað er að skjóta frá sér geysi-
lega sterkum ljósgeisla, sem yrði
næstum ósýnilegur vegna þess
hversu örmjór hann yrði og
vegna hins ofsalega hraða hans,
sem yrði einn milljónasti úr