Úrval - 01.12.1966, Side 8
6
ÚRVAL
og þar með áhrifamikið skilríki um um, þangað til ljósmyndafræðin af-
harmleikinn á Golgata og hin sanna hjúpaði hana fyrir heiminum.
mynd hans falizt þannig í blettun-
Þegar Englendingur verður ósáttur við konuna sína, fer hann í
klúbbinn sinn. Frakkinn fer til ástmeyjar sinnar, en Bandaríkjamaður
fer til lögfræðings síns.
Þegar Englendingur fer út að skemmta sér að kvöldi til, er barn-
fóstra hans venjulega einhver nágranninn. 1 Bandarikjunum er það
ókunnug persóna, en í Frakklandi er það konan hans.
1 Englandi og Frakklandi eru stöðutákn (status symbol) yfirleitt
nokkurra alda gömul. 1 Bandaríkjunum er yfirleitt ekki enn búið að
borga stöðutáknið.
Frakkland sendir Ameríku kjóla. Ehgland sendir Ameríku jakkaföt.
Ameríka sendir Englandi og Frakklandi skemmtiferðamenn í frönskum
kjólum og enskum jakkafötum.
1 Englandi talar maður ekki við ókunnugt fólk í járnbrautarlestum.
í Frakklandi taiar maður ekki við ókunnugt fólk í járnbrautarlestum.
1 Bandaríkjunum ferðast maður ekki í járnbrautarlestum.
Enskar konur gerða ráð fyrir því, að eiginmaðurinn verði trúr og
tryggur. Bandarískar konur gera ráð fyrir því, að eiginmaður: # í sé
trúr og tryggur. Franskar konur gera ráð fyrir því, að eiginmaðurinn
komi heim í kvöldmatinn.
Frönsk dagblöð eru yfirleitt bálreið út í ríkisstjórnina í Washington.
Ensk dagblöð eru yfirleitt bálreið út i ríkisstjórnina í Washington.
Bandarísk blöð eru yfirleitt bálreið út í ríkisstjórnina í Washington.
Fred Sparks.
Coco Chanel, hinn frægi franski tízkufrömuður, var spurð að því,
hvort hún væri meðmælt því, að kvenfólk sýndi læri sín og hné með
því að klæðast stuttu piisunum, sagði hún: „Lærin .... auðvitað.
Hnén .... aldrei.“
U.N.P.
Siðustu orð Brendans Behans leikritaskálds voru þessi, en þau mælti
hann til hjúkrunarnunnu, sem var að telja æðaslög hans: „Guð blessi
þig, systir. Megi allir synir þínir verða biskupar."
John og June Robbins
Hæna: Það er eina skepnan, sem getur lagzt niður við vinnuna og
samt náð árangri,