Úrval - 01.12.1966, Side 98
96
ÚRVAL
toga spunnin. Á öldinni sem leið
var mikið um það að konur féllu
í yfirlið ef eitthvað gekk þeim á
móti, og jafnvel sterkustu menn
geta fallið í yfirlið af því einu að
fá innspýtingu af meðali. Þarna eru
allt aðrar lífeðlisfræðilegar ástæð-
ur fyrir hendi. Athugum snöggvast
hvernig aðsvif gerast. Þau eru fyrst
og fremst því að kenna, að heil-
inn (eða nánar tiltekið stöðvarnar
þar sem meðvitundin er), fær ekki
þann skammt af súrefni, sem eðli-
legt er.
Fyrir mörgum árum var ég
herlæknir í flugher Breta, og var
ég þá beðinn að gangast undir til-
raunir nokkrar í afþrýstiloftsklefa.
Við sátum saman nokkrir í hóp á
stórum geymi úr málmi, dyrnar
voru harðlæstar svo ekkert loft
komst inn eða út, og nú kom stór
dæla sem dældi loftinu út úr klef-
anum, og mér sýndist sem ljósin
væru stöðugt að daprast eins og
gerist á kvikmyndahúsi, þegar ver-
ið er að slökkva. Þetta stafaði af
því að ekki barst nóg súrefni til
sjónstöðva heilans og augnanna.
Og svo missti ég meðvitund,
snöggvast og vaknaði á gólfinu,
þegar ég fékk aftur nóg loft.
Það er eitthvað þessu líkt sem
gerist þegar við fáum aðsvif. Stund-
um líður yfir hermenn á verði, eða
fólk á samkomum, og stafar það
ef til vill af hreyfingarleysi. Þá
safnast blóðið fyrir í fótunum en
fær ekki eðlilega rás um allan
líkamann. Þegar menn falla í yfir-
lið eftir að hafa verið í heitu baði,
er það vegna þess að húðin tekur
viðbrögð til að leiða burt hitann,
og allar holur opnast, og um leið
sogar hún að sér, eins og svampur,
meh-a af blóði en líkaminn má við.
Fólki, sem verið hefur veikt í
marga mánuði og þessvegna ekki
getað fengið að hreyfa sig eðlilega,
eða þeim sem einhverra hluta
vegna geta lítið hreyft sig, hættir
mjög við yfirliðum, vegna þess að
vöðvakerfi æðanna er veiklað.
Oft nær sá sem fellur í yfirlið
ekki að gefa neitt hljóð frá sér, og
stundum meiða menn sig um leið
og þeir detta. Því meðan óminnið
varir, er það djúpt, og það hverfur
jafnskjótt og það kom.
Þá eru aðrir sjúklingar, sem
gjarnt er til að meiða sig mikið,
og jafnvel að skaðbrenna sig, ef
eldur er nærri, en þetta eru floga-
veikissjúklingarnir. í stórum köst-
um Ze grand mal flogaveikinnar, fer
alltaf meðvitundarleysi á undan.
Og ef ekki er neinn til staðar til
að sjá hvað gerist og engin merki
um sjúkdóminn hafa komið fram
áður, er sjúklingnum stundum sagt
að hann hafi fengið aðsvif, ef hann
segist hafa vaknað til meðvitundar
á gólfinu eða úti á víðavangi. En
oftast er hægt að sjá hvað gerzt
hefur, því sjúklingurinn kann að
hafa bitið sig, og jafnvel skaddazt
til óbóta. Hann kann einnig að
hafa haft þvaglát eða hægðir óaf-
vitandi.
Væg flogaveiki í börnum, petit
mal, lýsir sér í því, að barnið verð-
ur allt í einu utan við sig, ringlað,
eða mjög annars hugar. Stundum
missa þau það sem þau halda þá á,
eða gera einhverja vitleysu, ann-
aðhvort af athugaleysi eða vegna