Úrval - 01.12.1966, Blaðsíða 128
126
sakanna sé að leita í of litlum
svefni, slæmu mataræði eða venj-
um, ónógri hreyfingu og síðan
áhyggjum og stundum getur jafnvel
skemmtunin yfir helgi, þó að hún
sé holl, eins og golf eða þess hátt-
ar, orsakað höfuðverkinn, ef þú
finnur til sektar með sjálfum þér
yfir því að vera úti á golfvelli í
stað þess að vinna verk, sem þú
hefðir þurft að vinna.
En af hvaða orsökum, sem höfuð-
verkur þinn kann að stafa, þá kann
Montfioresjúkrahúsið ráð við hon-
um. Það hefur tæki og lækna til
að rannsaka höfuðverkinn frá öll-
um hliðum og getur síðan ráðizt
til atlögu við hann á marga vegu.
Minna en tíu af hundraði af
sjúklingunum þurfa að liggja á
sjúkrahúsi, og flestir koma því að-
eins reglulega til læknisaðgerðar.
Oft er læknisaðgerðin sára-ein-
föld og felst í því að hvíla eða slaka
á hinum spenntu vöðvum og
minnka næmni þeirra. Þetta erhægt
að gera með nuddi, rafmagnshita,
heitu baði, aspríni eða öðrum mild-
um lyfjum, sem draga úr næmi
vöðvanna.
Læknisaðgerðin við „migreni“ er
margbrotnari, því að þar þarf að
ráðast að slæmri meinsemd, sem
orsakar verkina. Aðalmeðalið, eins
og sakir standa er kallað „ergota-
mine tartrate“, sem ýmist er notað
eitt sér eða með öðrum efnum
eins og koffini eða pentobarbital
sodium. Þessi lyf eru ýmist tekin
inn eða sprautuð í líkamann og
hafa því áhrif á veggi hinna veiku
æða og draga úr æðaslættinum, og
ÚRVAL
þrengslunum sem orsaka sársauk-
ann.
Vegna stöðugra rannsókna og til-
rauna fer þeim lyfjum stöðugt
fjölgandi, sem létta mönnum þenn-
an höfuðsjúkdóm, „migreni".
Enda þótt stofnun eins og Monte-
fiore sjúkrahúsið sé sú stofnun,
sem mestar líkur séu til að veita
lækningu, þá er heimilislæknirinn
sá sem rétt er að leita til fyrst allra.
Hann vísar sjúklingi sínum til sér-
fræðinga, sem hann telur að þurfi
að rannsaka sjúklinginn, og hann
veit manna bezt, hvort sjúkling-
urinn þarf að breyta venjum sín-
um.
Meðan þú bíður eftir úrskurðin-
um geturðu sjálfur athugað eða
hugsað um nokkur atriði í lífs-
venjum þínum.
1. Hungur er mjög algeng orsök
til höfuðverkjar. Borðaðu reglu-
lega.
2. Forðastu fjölmennar samkom-
ur, þar sem þrengsli eru mikil og
farðu heldur út undir bert loft.
3. Liggðu fyrir eða reyndu að
sofna eða hvílast á annan hátt.
4. Taktu inn aspríntöflu og
drekktu bolla af kaffi með.
5. Fáðu þér sjóðheitt bað.
Eins og haft var eftir dr. Fried-
mann í upphafi þessa viðtals, þá
er erfitt að lækna höfuðverk, nema
komizt verði fyrir hina raunveru-
legu orsakir hans, sem oftast eru,
eins og hér hefur verið rakið, of
mikið álag nútíma borgarlífs.
Þess vegna er varanlegur bati fólg-
inn í því einu, að minnka álagið,
sem hefur verið frumorsök höfuð-
verkjarins, og það getur ekki þýtt