Úrval - 01.12.1966, Síða 97
AÐSVIF
95
þá vill setjast aS henni leiði og
gremja, eins og flestir munu þekkja
af sjálfs reynd. Hún fer að verða
óánægja að staðaldri og þetta setur
svipmót á hana. Og svo kemur að
því að maður hennar og börn taka
eftir þessu. Mamma er orðin svo
þreytuleg, hún þarfnast hressingar
og líklega ætti hún að fara til lækn-
is. Þessi alúð fellur henni svo vel í
geð, að henni skánar, því nú þyk-
ist hún vita að fólkinu sínu standi
ekki á sama um sig. En svo sækir
í sama horfið, og allt verður eins
og áður, eða verra.
Og þegar aðsvifið kemur næst,
gerist það fyrirvaralaust. Nú sjá
þau öll að eitthvað muni vera að.
Hún kann að hafa orðið fyrir von-
brigðum, e.t.v. án þess að hún geri
sér grein fyrir því, og nú nær hún
sér ekki. Hún fer að setja ýmislegt
fyrir sig. Stundum finnst henni hún
verða vör við óþægilegan sviða í
útlimum, og engin leið að finna
ástæðuna, eða þá að henni finnst
eitthvað þrengja að brjóstinu. Ef
þessi köst vara við, versnar þetta
svo hún fær andateppuköst, hún
svitnar ákaflega mikið, og við og
við fær hún aðsvif. Hún missir með-
vitund um styttri eða lengri stund.
Heimafólkið verður oft ákaflega
hrætt, og hún er orðin miðdepill
fjölskyldunnar á ný, en nú gagnar
það ekki, og venjulega er sóttur
læknir.
Lækninum veitist ekki erfitt að
finna hvaða sjúkdómur þetta er.
Hvernig sem leitað er, finnast eng-
in líkamleg orsök, og þetta kemur
aldrei fyrir þegar hún er ein heima,
heldur aðeins þegar einhver er
viðstaddur, og því fremur sem
fleiri eru. Samt er of mikið sagt
að telja þetta vera uppgerð, eða
einungis gert til að vekja á sér
eftirtekt og láta vorkenna sér, held-
ur leita hinar duldu áhyggjur, sem
konur þessar bera með sér, útrás-
ar á þennan sýnilega hátt. Þær
koma sér ekki að því að tala um
það sem mest mæðir þær: að þeim
finnst sér vera ofaukið og að öll-
um standi á sama um þær.
Unglingsstúlkur fá oft samskon-
ar aðsvif. Einkum ber þetta til ef
þær lenda í ósamþykki við piltinn
sinn, eða ganga ekki út og verða
útundan þegar allar stöllur þeirra
harfa náð sér í pilt. Mæðurnar eru
oft ónærgætnar við þessar stúlkur,
þær skipa þeim að fara á dansleik
í þeim sama klúbb þar sem þær
hafa fyrir stuttu orðið fyrir auð-
mýkingu. „Ég átti þarna ekki
heima. Mér var ofaukið og enginn
skipti sér af mér. Auk þess er mér
eithvað illt,“ — og svo fær hún
aðsvif allt í einu, og þá snýst allt um
hana það sem eftir er kvöldsins.
Það kemur sjaldan fyrir að full-
orðnir karlmenn eða unglingar fái
þennan kvilla, og kann vera að það
standi í sambandi við lífsviðhorf
þeirra. Læknar hafa nafn fyrir
þessi stuttu aðsvif, og kalla þau
hyperventilation. Það þýðir að
andardrátturinn verður svo hrað-
ur, að efnasamsetning blóðsins fer
úr skorðum, og oft gerist það, ef
læknir segir sjúklingi að anda hratt,
og hraðar en eðlilegt er, og hann
fær aðsvif.
Aðsvif og yfirlið eru af ýmsum