Póllinn - apr. 2024, Blaðsíða 15
Gurbanguly Berdimuhamedow, áhugamaður um heimsmet
Frá því að Túrkmenistan lýsti yfir sjálfstæði árið 1991 frá Sovétríkjunum hafa þrír forsetar verið við
völd og hafa þeir allir verið einræðisherrar. Sá fyrsti var kommúnistaleiðtoginn Saparmyrat
Nyýazow, eða Türkmenbaşy, en við fráfall hans 2006 tók Gurbanguly Berdimuhamedow, oft
kallaður Arkadag sem merkir Verndarinn, við völdum. Árið 2022 tók Serdar Berdimuhamedow,
sonur Gurbangulys, síðan við forsetaembættinu. Türkmenbaşy var áhugaverður karakter og
einkenndist valdatíð hans mikið af persónudýrkun, sem Gurbanguly Berdimuhamedow hélt
gangandi.
Gurbanguly Berdimuhamedow er sérstakur áhugamaður um heimsmet, Heimsmetabók Guinness
nánar tiltekið, og einkenndist valdatíð hans af ýmsum áhugaverðum heimsmetum. Í höfuðborginni
Asgabat er til að mynda hæsta hlutfall marmarabygginga á afmörkuðu svæði, en árið 2013 voru þær
543 á 4,5 fermílna radíusi. Í Asgabat eru líka flestir gosbrunnar í almenningsrými, en Asgabat-
gosbrunnurinn inniheldur 27 minni gosbrunna. Að auki er stærsta parísarhjól heims í Asgabat en
það stendur í Alem-skemmtigarðinum í suðurhluta borgarinnar. Heimsmet Túrkmenistan eru þó ekki
bara byggingarlegs eðlis heldur hefur landið líka heimsmetið yfir flesta hjólreiðamenn sem hjóla í
beinni línu, en þeir voru 2.019 og hjóluðu 3.300 metra. Einnig hefur landið heimsmetið yfir
fjölmennasta kórinn, en árið 2015 sungu 4.166 manns lagið „Áfram bara áfram, kæra landið mitt
Túrkmenistan“ fyrir Berdimuhamedow.
14