Póllinn - apr. 2024, Síða 18

Póllinn - apr. 2024, Síða 18
Dystópíur er sögur sem fá okkur til þess að hugsa um eigin tilveru með öðru sjónarhorni en við erum vön. Í dystópíum draga höfundar oft upp svörtustu mynd af samfélagi sem hægt er. Samfélögin geta verið skálduð eða dregið innblástur sinn af þeim sem við þekkjum úr eigin heimi. Í þeim er oft að finna kerfi sem taka við í kjölfar stríðs eða styrjaldar. Dystópíur gera okkur kleift að spegla samfélagið okkar í þeim. Við getum litið á það með mismunandi augum, jákvæðum eða neikvæðum augum. Við getum nýtt þær til innblásturs eða til þess að skapa ótta. Sumar dystópíur eru mjög líkar samtímanum okkar, taka má sem dæmi 1984 eftir George Orwell en hún á að gerast í framtíðinni, árið 1984. Vert er að taka fram að bókin var gefin út árið 1949. Auðvitað er árið 1984 löngu liðið í okkar hugum en þrátt fyrir að bókin sé orðin tiltölulega gömul þá getum við samt sem áður speglað samtímann okkar í henni og sjáum að Orwell var ekki það fjarri lagi þegar hann var að ímynda sér framtíðina. 1984 gerist í landi þar sem ríkir einræði. Fylgst er með hverju einasta skrefi íbúa þess. Aðalpersónan Winston er byltingarsinni og vill steypa stjórninni af stóli. Stjórn landsins hefur umbreytt tungumálinu til þess að gera það nærri ómögulegt að byrja byltingu. Með stjórn tungumáls fylgir oft stjórn á þekkingu og með stjórn á þekkingu er hægt að velja hvað og hvernig upplýsingaflæði er. Án þekkingar er erfitt að byrja byltingu þar sem þú hefur ekki orðaforðann eða hugtökin til þess að styðjast við. Í bókinni fjallar Orwell um mátt tungumálsins og notkun þess til skilnings. Stjórn landsins sem oftast er þekkt sem „big brother“ og sumir kannast kannski við setninguna „big brother is watching you“. Stjórnin er búin að sannfæra þegna sína að 2 + 2 = 5 sem hljómar vitaskuld rangt en ef þú heyrir það aftur og aftur þá byrjarðu að lokum að trúa því. Winston trúir því að 2 + 2 = 4 og er það hluti af söguþráðnum hans. Hann trúir því að stjórnin sé að kúga fólkið þó það viti það ekki sjálft og hann ásamt Juliu byrja að vinna að byltingu. Í enda bókarinnar fáum við að vita að byltingin endaði jafn skjótt og hún byrjaði. Winston og Julia eru handsömuð eftir að hafa verið svikin og eru þau pyntuð í ráði sem heitir því skemmtilega nafni „ministry of love“. Í lok bókarinnar situr Winston á kaffihúsi, Julia labbar framhjá án þess að segja aukatekið orð og Winston skrifar í rykið á borðinu 2 + 2 = 5. Söguþráður bókarinnar endurspeglar samtímann okkar á þann veg að nánast allt sem við gerum á netinu er hægt að fylgjast með. Það eru einnig ríki sem reyna að hafa áhrif á og jafnvel stoppa upplýsingaflæði í gegnum netið til þess að fólk eigi erfiðara með að koma sér saman eða fá upplýsingar sem gætu leitt til byltingar. Hungurleikarnir (e. Hunger Games) eftir Suzanne Collins eru dæmi um dystópíu sem dregur innblástur sinn í sögulega atburði. Í þeirri bók sjáum við Panem sem er ríki sem dregur innblástur sinn frá Bandaríkjunum. Ríkinu er skipt í 13 umdæmi, fylki og síðan Kapítalinn þar sem að efri stétt landsins býr. Í Hungurleikunum má sjá mjög ógeðslega mynd af raunveruleikanum þar sem að börnum er fórnað á hverju ári og eru látin berjast til dauða í hinum svokölluðu Hungurleikum enda dregur bókin nafn sitt af þeim. Í forleiknum Danskvæði um söngfulga og slöngur (e. Ballads of Songbirds and Snakes) er síðan minnst á „human zoo“ eða dýragarð þar sem að fólk var geymt. Þó að okkur kynni að þykja þetta fremur ógeðslegt þá er ekki hægt að neita því að þetta dregur innblástur í raunveruleikann. Á tímum forn-Grikkja var fólk látið berjast til dauða við ýmis dýr eða annað fólk. Það voru víðsvegar um heim dýragarðar sem geymdu fólk og þá sérstaklega fólk frá nýlenduþjóðum. Seinasta dæmið um þetta var í Brussel árið 1958 þar sem að fólk frá Kongó var til sýnis og átti að minna fólk á „afrek“ Belgíu. DYSTÓPÍUR: LIFE IMITATES ART Margrét B W Waage Reynisdóttir 17

x

Póllinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.