Póllinn - Apr 2024, Page 24
23
Íþróttadiplómatík er aðferð sem fáir pæla í. Hún felur í sér að nota íþróttir til að hafa áhrif á
diplómatísk, félagsleg og pólitísk samskipti ríkja. Kosturinn við að nýta íþróttir í þessum tilvikum er
að íþróttir eru án landamæra, ýta undir brennandi áhuga stuðningsmanna og sameina fólk
hvaðanæva að. Í gegnum tíðina hefur samspil íþrótta og stjórnmála skilað af sér bæði jákvæðum og
neikvæðum tilfinningum og í stundum hafa íþróttir verið nýttar til að knýja fram breytingar.
Íþróttaþvottur
Íþróttaþvottur lýsir þeirri iðkun að nota íþróttir til þess að bæta eða efla orðspor eða ímynd þjóða,
einstaklinga, hópa eða ríkisstjórnir. Íþróttaþvottur er áróður sem ríki reka með því að halda
íþróttaviðburði, eignast eða styrkja íþróttaliði. Tilgangurinn er að beina athyglinni frá umdeildum
eða neikvæðum þáttum eins og mannréttindabrotum, pólitískri kúgun eða annarri siðlausri hegðun.
Hugtakið gefur til kynna vísvitandi tilraun til að hreinsa eða „þvo“ burt neikvæða skynjun eða
gagnrýni sbr. grænþvottur og bleikþvottur.
Í mars 2021 upplýstu mannréttindasamtökin Grant Liberty gríðarleg útgjöld Sádi-Arabíu sem náðu
yfir 203 milljarða vegna meintrar íþróttaþvottastarfsemi. Dæmi um þessa fjárfestingu er eignarhald
Saudi Public Investment Fund (PIF) á fjórum fótboltafélögum í Sádi-Araba-deildinni, sem gerir þeim
kleift að eyða stjarnfræðilegum fjárhæðum eins og að greiða Cristiano Ronaldo yfir 30 milljarða á ári
í laun. Slík óhófleg eyðsla ýtir ekki aðeins undir íþróttahagkerfið á heimsvísu heldur þvær líka gróf
mannréttindabrot konungsríkisins, þar á meðal morðið á blaðamannninum Jamal Khashoggi og
hlutverk þeirra í stríðinu í Jemen.
Frægt dæmi um íþróttaþvott eru Ólympíuleikarnir í Berlín 1936 undir stjórn nasista. Adolf Hitler
nýtti leikana sem áróðurstæki til að sýna yfirburði aríska kynþáttarins. Hann lét byggja
Ólympíuleikvanginn í Berlín sem rúmar 100 þúsund manns og borgaði Leni Riefenstahl,
áróðurskvikmyndagerðakonu, til að gera heimildarmynd um leikana. Auk þess voru tekin niður skilti
sem bönnuðu gyðingum að vera í almennum rýmum. Þessi hugsýn Hitlers var rifin niður með sigri
svarta íþróttamannsins Jesse Owens, sem vann til fernra gullverðlauna, og ögraði þannig
hugmyndafræði þriðja ríkisins um yfirburð hvíta kynstofnsins.
Þjóðernishyggja og íþróttir
Þjóðernishyggja fléttast oft saman við íþróttaviðburði, þar sem þjóðir fylkja sér bakvið sína
íþróttamenn og -lið til að sanna yfirburði sína á alþjóðavettvangi.
Yfirvöld í Katar lögðu mikla áherslu á að halda Heimsmeistaramót karla í fótbolta 2022. Þau nýttu
það sem tækifæri til að kynna framfarir og þróun landsins. En á sama tíma var kerfisbundin
misnotkun á farandverkamönnum. Það undirstrikar hið mikla misræmi á milli ímyndarinnar sem
sóst var eftir og raunveruleikans.
ÍÞRÓTTIR OG STJÓRNMÁL
Íris Björk Ágústsdóttir