Póllinn - apr. 2024, Síða 31

Póllinn - apr. 2024, Síða 31
30 Ýmislegt er hægt að gagnrýna við kenningu Bourdieu. Helst skortir hana inngildingu. Margbreytilegir þættir eins og kyn, fötlun, kynþáttur og kynhneigð spila stóran þátt í stéttarkerfinu. Persónulega hef ég tekið eftir miklum væntingum innan menntakerfisins. Alveg frá grunnskóla er búist við því að nemendur eigi að foreldra sem geti hjálpað með námið, að fólk vilji almennt fara í nám, að nemendur kunni „rétta“ íslensku, að foreldrar hafi réttu verkfærin til að hjálpa barninu, að nemendur hafi nægan frítíma og nægt fjármagn til að uppfylla allar námskröfur samfélagsins, að nemendur kunni leikreglurnar og hafi getuna til að fara eftir þeim. Kerfið er ekki hannað fyrir fjölbreytileikann sem lifir innan þess. Í þessari grein geri ég grein fyrir mínu viðhorfi á stéttarkefinu á Íslandi með stuðningi frá kenningu Bourdieu. Eftir að ég kynnti mér kenningu Bourdieu varð spurningin „hvaða stétt tilheyri ég?“ flóknari og það varð mun erfiðara að setja sig í einn flokk eins og ég hafði áður gert með kenningum Marx á stétt. Markmið þessar ritgerðar er að fólk spái í margbreytilega samband sitt við stétt innan ólíkra rýma. Þú getur verið af millistéttarfjölskyldu en með námserfiðleika eða af verkamannastétt með enga námserfiðleika. Þú getur verið fyrsta kynslóð háskóla-menntaðra í ættinni þinni og ekki haft sömu þekkingu innan þess rýmis og aðrir af margra kynslóða háskólamenntaðra. Aðalatriðið er að stétt er meira en fjárhagslegur eiginleiki heldur er hún félagsleg og getur þess vegna litið alls konar út. Vonandi eftir að lesa þessa grein hefur þú sem lesandi betri skilning á þá mismunandi eiginleika sem mynda stétt innan menntakerfisins og hvernig þessir eiginleikar hafa áhrif á þig og fólkið sem þú umgengst.

x

Póllinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.