Póllinn - apr. 2024, Side 54

Póllinn - apr. 2024, Side 54
Þjóðareign Embætti landlæknis varar við nýjum faraldri: joðskortur kvenna á barnseignaraldri. Embætti landlæknis ráðleggur öllum konum á barnseignaraldri að gefa alfarið upp áfengisneyslu, ef ske kynni að þær yrðu óléttar. Embætti landlæknis mælir með að konur á barnseignaraldri sneiði hjá sykri og haldi sér á lágkolvetnafæði, sykursýki sæmir ekki barnshafandi konum Embætti landlæknis sagði mér „Hvernig dirfist þú? Allar konur milli fimmtán og fimmtíu eru á barnseignaraldri. Veistu ekki að líkami þinn er þjóðareign?“ Embla Rún Hall LJÓÐ FRÁ NEMENDUM Klapp fyrir þér Hermes, ég biðla til þín Vísaðu strætó til mín Ég hata þetta app Sem kallað er Klapp Ég hef reynt allt Mér er svo kalt Villa segir skjárinn Fram ryðjast tárin Gegnum þau lít í kring Fólk sér þennan hrylling Horfa í hina áttina Þau þekkja sársaukann og eymdina Játa mig sigraða Annar sigur appsins blessaða Fer aftur út í rigninguna Og hef gönguna Íris Björk Dauðinn Ég hugsaði um dauðann Í fyrsta skipti í langan tíma Hann kom til mín og hvíslaði í eyrað mitt Hann lofaði mér öllu fögru Hann bauð mér að koma með sér yfir ánna Þar sem ég myndi finna fyrir eilífðar ró Ég var ekki viss hvort hann hafi leitað til mín Eða ég til hans En ég hugsaði um dauðann Og hann hugsaði um mig Mó 53

x

Póllinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.