Úrval - 01.12.1974, Page 16
14
ÚRVAL
rótum, sem lýðræðið kemur til með
að standa í Thailandi, hvort herinn
getur á sér setið að hrifsa til sín
völdin enn einu sinni, og hvaða
áhrif þessar breytingar hafa á
langt og vinsamlegt samband við
Bandaríkin, á eftir að koma í ljós.
Kommúnistar láta æ meira að sér
kveða í norðaustri, norðri og suðri.
Og þótt efnahagur landsins hafi áð-
ur verið litinn öfundaraugum, hef-
ur þar nokkuð harðnað á dalnum.
Árleg aukning fólksfjölda í Thai-
landi er 3.3%, sem er næstum
mesta fjölgun einnar þjóðar í heim-
inum, og þetta kann að leiða til
fæðuskorts þegar á næsta áratug.
Bandaríkin hjálpa enn um skeið
— bæði með beinni hjálparáætlun
(styrkurinn var nærri 4 milljarðar
króna 1974) og með samningi um
að koma Thailandi til hjálpar,
verði á það ráðist. En enginn geng-
ur þess dulinn, að eftir margra ára
óspilun embættismanna og herfor-
ingja í Thailandi — fjárhæðin er
talin nema hundruðum milljarða
síðan 1949 — eru Bandaríkin nú
farin að verða nokkuð fastheldn-
ari.
Nýir vindar blása nú í Suðaustur
Asíu, vindar, sem enginn veit hvert
leiða. Ef thailendingum tekst einu
sinni enn að „bogna án þess að
brotna" munu þeir þakka það hinu
nýunna lýðræði og hinum óvenju-
lega og hæfileikamikla konungi,
sem gerði það mögulegt.
☆
ARÐUR EFTIR FRAMLAGI.
Þegar gullæðið geysaði í „villta vestrinu", ákvað ungur banda-
ríkjamaður að nafni Spencer Penrose að „fara vestur“ og freista
gæfunnar. Hann var af fínum ættum og hafði nýlokið námi sínu
við Harvard háskóla, og fjölskyldunni fannst hann vera vanþakk-
látur, svartur sauður. Hann hélt til Colorado Springs árið 1891, en
ekki hafði hann lengi verið þar, þegar hann sendi bróður sínum
skeyti og bað hann að senda sér 1500 dollara, því hann langaði að
kaupa hlut í gullnámu. Bróðir hans sendi honum ærlega ofanígjöf
og 150 dollara fyrir farmiða heim.
Nokkrum árum síðar hélt Spencer Penrose aftur heim til heima-
byggðar sinnar og rétti bróður sínum 75 þús. dollara í gulli. —
Bróðirinn starði stóreygur á gullið, en minnti síðan Spencer á,
að hann hefði ekki viljað taka þátt í gullævintýrinu og aðeins
sent honum 150 dollara til heimferðar.
„Veit ég vel,“ svaraði Spencer. „Það er þess vegna, sem þú færð
aðeins 75 þúsund dollara. Hefðirðu sent mér það, sem ég bað um,
hefði hlutur þinn orðið 750 þúsund dollarar."