Úrval - 01.12.1974, Síða 23
21
Það er ekki oft, sem fréttir berast hingað frá
Rauða-Kína aðrar en þær, sem fjölmiðlar af þeim
slóðnm dreifa sjálfir. En þótt byltingin hafi
gert það kraftaverk að kveða niður hungurvofuna í
þessu fallega og víðlenda ríki, er samt
margvíslegur vandi við að glíma þar sem annars
staðar. Méðfylgjandi grein er útdráttur úr grein, sem
V. Turusov skrifaði fyrir Komsomolskaja
Pravda, blað sovéskrar æsku.
Brottrekið fólk
*
*
*
*
maí 1973 leystu kín-
^ versk blöð frá skjóð-
^ unni og skýrðu frá því,
að ungt fólk, sem sent
er út á landsbyggðina,
JK7K7R7K7K lifgi þar yið ákaflega
erfið lífsskilyrði. Aðrar fregnir
herma, að ungar stúlkur vinni þar
erfiðisvinnu, svo sem við að aka
hjólbörum eða sveifla 14 kg sleggj-
um.
Kínversk blöð birta einnig marg-
ar fréttir um, að heilir hópar ungs
fólks, til dæmis fyrrverandi bekkj-
arfélagar, hafi á þessum erfiðu ár-
um myndað eigin samfélög í þorp-
unum. Þetta eru ekki frjálsir land-
nemar, sem sækjast eftir nýjum
lífsháttum og kjósa að taka sér
fasta búsetu úti á landsbyggðinni.
Við þessar aðstöður taka ungling-
arnir upp kynsambönd án hjóna-
bands, þar eð þeir geta ekki stofn-
að fjölskyldu. Það veldur þó leið-
togunum í Peking mestum áhyggj-
um,- að þetta unga fólk les „sið-
spillandi“ bækur, að dómi Maó-
ista, það er sígildar bækur, kín-
verskar og erlendar, er voru gefn-
ar út fyrir „menningarbyltinguna".
Leikhúsum og kvikmyndahúsum
hefur verið fækkað í landinu. I
„menningarbyltingunni11 var klúbb-
um, bókasöfnum og görðum lokað
og íþróttir urðu að þoka til hliðar.
í hinum vanþróuðu sveitahéruðum
Kína, þar sem það er hefð að líta
niður á konur, er staða ungra
stúlkna, sem hafa verið gerðar
brottrækar úr borgunum, ákaflega