Úrval - 01.12.1974, Page 34
32
ÚRVAL
hef kynnst. Og þó var það eins og
opinberun um það, sem framundan
var, eitthvað nýtt, sem átti að ger-
ast. Um þetta hef ég ekki meira að
segja, annað en ég vaknaði skyndi-
lega á slysastofu sjúkrahússins.
Ég verð að endurtaka, að allt,
sem ég reyndi fyrir utan ramma
hins þekkta raunveruleika okkar,
kom ekki fyrir mig eins og ég væri
á ferð, sem ég get rifjað upp í
minningunni. Þetta er nokkuð, sem
ég hef fundið út eftir á, djúpt í
undirvitund minni, eins og vitn-
eskju, sem engum vafa er undir-
orpin. Ég er að eðlisfari fremur
tortrygginn, svo ég vil ekki neita,
að allt þetta séu eftirköstin af ein-
hvers konar heilaskaða, en ég veit
samt að eftir heimkomu mína frá
þessu öðru tilverustigi er afstaða
mín til þessa heims breytt á marg-
an hátt og breytist enn, næstum án
þess að ég vilji það. Og enn finn ég
til löngunar, eins og heimþrár, eftir
þessum öðrum raunveruleika, þess-
ari ólýsanlegu kyrrð og ró, þar sem
„ég“ er hluti af samræmdri heild.
Og þessi minning hefur dregið úr
hinu fyrra kapphlaupi mínu eftir
peningum og velgengni.
EFTIRMÁLI: Ég er nú nýkominn
heim eftir stuttan og þægilegan
skokktúr og sit úti í garði að skrifa.
Yfir mér blaktir stór ösp í mildum
sunnanvindinum, og úti á götunni
ganga tvö lítil börn framhjá og
leiðast, algjörlega í sínum eigin
heimi. Ég er feginn, að ég er hér
og nú, en ég veit, að þessi dásam-
legi heimur sólar og vinda, blóma
og barna og fólks, sem elskast, þessi
hræðilegi heimur mannvonsku,
grimmdar og þjáningar, er aðeins
einn af mörgum raunveruleikum,
sem ég verð að kynnast á leiðinni
að fjarlægu og ókenndu marki. En
fyrst um sinn heyri ég þessum
heimi til og hann mér.
☆
ÞRÝSTILOFTSBOR.
Tæknifræðingar við Rannsóknarstofu Málmvinnsluiðnaðarins í
Krivoj Rog í Úkraínu, hafa smíðað jarðbor, sem auðveldlega vinn-
ur á frosinni jörð. Borinn gengur fyrir þrýstiloftsmótor, og við
tilraunir, sem gerðar hafa verið í Tjumenhéraðinu í vesturhluta
Síberíu, hefur hann reynst bora tíu sinnum hraðar en borar af
eldri gerðum. Kostnaður við boranir lækkar þar með um helming.
Borvélar þessar eru notaðar til að bora lóðréttar og hallandi holur
fyrir staurum, háspennulínum og húsum á túndrusvæðunum, en
þar er frost í jörðu árið um kring.
APN.