Úrval - 01.12.1974, Blaðsíða 40
38
ÚRVAL
segir Louis Glunz, vínkaupmaður
og gestgjafinn í ferðinni, sem í voru
systir hans, fimm börn hans, konur
þeirra og menn, svo og 27 barna-
börn.
Boðið er upp á ferðir fyrir marga
áhugahópa: Ferðir fyrir einhleypa
til dæmis, eða fegurðar- og líkams-
þjálfunarferðir fyrir menn og kon-
ur. Ferðir með stöðugu hljómleika-
haldi, eða ferðir fyrir fjármála-
fólk, þar sem boðið er upp á fyrir-
lestra um verðbréfaviðskipti, svo
að eitthvað sé nefnt.
Ekki er alltaf feitan gölt að flá,
hvað þessar sérstöku ferðir snert-
ir. Einn talsmanna skipafélaganna
viðurkennir opinskátt: „Flestar
ferðir eru farnar til að fylla klef-
ana á tímum þegar lítið er að gera.
Stundum heppnast þær framúr-
skarandi vel. En hitt er mun ofta’-,
að þær gera það ekki.“ í einni ferð
sem þótti takast sérlega illa, voru
farþegarnir fengnir á þeirri for-
sendu að þeir ættu að grenna sig í
ferðinni. í lok ferðarinnar kom i
ljós við könnun, að farþegarnir
höfðu í raun fitnað. „Við reiknuð-
um það út, að þeir komu einu tonni
þyngri til hafnar, en þegar lagt var
upp,“ viðurkenndi yfirkokkur skips
ins.
Á hinn bóginn eru skemmtisigl-
ingaskip, sem eiga velgengni sína
að þakka að miklu leyti matseðli
skipsins. Af hálfu sælkera ag mat-
manna hefur skip Frönsku línunn-
ar SS France verið álitið vera ríkj-
andi konungur „haute cusine“ á
heimshöfunum, en því stolti er
haldið uppi með tonnum af kjöti,
fersku grænmeti, crepes suzettes og
súkkulaði soufflés, sem framreitt er
af 180 kokkum skipsins og hjálpar-
liði þeirra.
Sennilega eru óvenjulegustu ferð-
irnar þær, sem fundnar voru upp af
Lars-Eric Lindblad, sem þekktur er
sem Jules Verne ferðaiðnaðarins.
Hann á 2500 tonna ísbrjót, sem rúm-
ar 92 farþega, en á honum flytur
hann farþega til Suðurheimskauts-
landsins og Norður-íshafsins. Lind-
blad er með á prjónunum að smíða
þrjú ný skemmtisiglingaskip, sér-
sönnuð til ferða upp Amazonfljót-
ið, Níl og Brahmaputrafljótið í Ind-
landi. Einnig eru uppi ráðagerðir
um smíði skips, sem mun að þrem
fjórðu vera neðan sjávarborðs.
„Salir skipsins," segir Lindblad,
„koma til með að vera þannig að
veggirnir verða nær eingöngu úr
gleri, svo farþegarnir sjá hvali,
fiska og annað sjávarlíf fyrir utan
allan daginn.“
Til eru önnur afbrigði. Sum skipa
félög ná farþegum frá Mið-Ameríku
með því að taka á sig allt að 80%
af flugfargjaldinu fram og til baka
frá heimilum þeirra til brottfarar-
hafnar. Önnur bjóða tveggja til
þriggja daga ferðir út í bláinn fyrir
fólk, sem fer bara vegna þess að
það nýtur þess að vera um borð á
skipi. Enn aðrir, og það sem ekki
hvað síst nýtur vinsælda, bjóða skip
sín til fjármálamanna og félagasam-
takp til ráðstefnuhalds. (Chase Man
hattan bankinn í New York og
bandarísku læknasamtökin eru með
al þeirra sem svo hafa gert).
Talsmaður samtaka bandarískra
ferðaskrifstofa, sem í eru 12 þúsund
meðlimir, bendir þeim, sem áhuga