Úrval - 01.12.1974, Page 41
FLJÓTANDI HVÍLDARSTAÐIR
39
hafa á skemmtisiglingum, á að
spyrja sjálfa sig eftirfarandi spurn-
inga:
— Hve miklu get ég eytt? Verð
á klefum er breytilegt hvað stað-
setningu þeirra varðar, og árstíma.
Til dæmis þá kostar tveggja manna
klefi í sjö daga siglingu New York
—Bermuda á ódýrasta tíma frá 360
dollurum (um 43 þúsund ísl. kr)
fyrir manninn, og fer upp í 765
dollara (um 90 þúsund ísl.) fyrir
manninn.
Sum skipafélög, en þau eru fá,
eins og Hollenska Ameríkulínan,
hafa þá stefnu að ekki skuli greiða
þjórfé, en hjá nærri öllum skipa-
félögum má búast við aukaútgjöld-
um, sem nema þremur og hálfum
dollar á dag (415 kr. ísl.). Upp á
síðkastið hefur einnig verið inn-
heimtur eldsneytisskattur frá 5 til
8 dollarar (600 til 1000 ísl. kr.) á
dag.
— Hvaða þjóðareinkenni — í
mat, áhöfn o. s. frv. — hef ég
áhuga á? Frönskum, ítölskum,
grískum, skandinavískum, amerísk-
um? „Hálf ánægjan við dvöl á skips
fjöl, getur verið sú að manni finnst
maður vera kominn um borð, á
þeirri mínútu sem maður stígur á
skipsfjöl," segir einn farþegi. En
varið ykkur á einu, hins vegar.
Ekki er alltaf hægt að sjá hverrar
þjóðar áhöfnin er á því frá hvaða
landi skipin eru. „Jafnvel þótt skip
okkar séu skrásett í Noregi og yf-
irmennirnir séu norskir, er áhöfn-
in að mestu frá Vestur-Indíum,“
segir talsmaður Norsk—Karabíska
félagsins. Þetta er nokkuð sem þú
ættir að kynna þér.
— Hvaða skipsstærð kýs ég? Með
1500 farþegum eins og Queen Eliza-
beth II, frá Cunard félaginu, eða
miðlungsskip eins og Gripsholm
Sænsku Ameríkulínunnar, sem rúm
ar 440 farþega? Áhuginn beinist
meira að minni skipum, þar sem
samgangur er meiri, þrátt fyrir að
stærri skip hafi upp á betri að-
stöðu að bjóða fyrir börn og meiri
umsvif um borð.
— Hvaða fata þarfnast ég? Það
er mismunandi. Á sumum skipum
þarfnast maður ekki jakka né slifs-
is. Á öðrum er smoking réttur
klæðnaður við mörg tækifæri. „Far-
þegarnir ættu að kanna málið hjá
ferðaskrifstofu sinni, eða beint hjá
okkur,“ leiðbeinir talsmaður eins
skipafélagsins.
- Þarfnast ég sérlegrar læknis-
þjónustu? Öll skip hafa lækni.
„Allir, sem þurfa einstaklings-
bundna læknis- eða lyfjameðferð,
ættu að skýra okkur frá því vel
fyrir brottför," segir einn skips-
læknir.
Eitt er víst. Ef þú hefur í huga
sumarfrí til sjós, er ekki um betri
tíma að ræða en einmitt nú. Eins
og einn reyndur skemmtisiglinga-
farþegi segir: „Sérhvert skemmti-
siglingaskip reynir að gera betur
en það næsta. Svo að sá, sem fer
með pálmann í höndunum úr
skemmtisiglingunni, er kúnninn. I
hvert sinn!“
☆