Úrval - 01.12.1974, Page 46
44
ÚRVAL
andi, er hún sæi allan þann iðnað,
sem sprottin er upp af litla leik-
fangafílnum hennar. 1300 manns
virtna við að framleiða dýrasafn
hennar — fimm milljón leikföng á
ári. Það eru 80 gerðir af dýrunum,
frá skjaldbökum og uglum til gír-
affa — meira en 700 mismunandi
gerðir. allt frá smádýrum, sem eru
minni en tíeyringur, til útstillinga-
dýra í næstum eðlilegri stærð og
þau kosta fleiri þúsund krónur. En
af þeim öllum er það teddybangs-
inn, nú framleiddur í sjö mismun-
andi litum og nítján stærðum og
selst í þúsundum eintaka hvert ár,
sem hefur reynst stærsta og varan-
legasta uppfinningin í leikfanga-
iðnaðinum frá upphafi.
☆
Meðan hertoginn af Edinborg, drottningarmaðurinn í Bretlandi,
lagði ennþá stund á pólóleik, gerðist það einu sinni, að bandaríkja-
maður einn var á ferð í Bretlandi og tók þátt í leik með hertogan-
um. Eftir leikinn bauð hertoginn hinum erlenda gesti með sér
heim til Windsor kastala að þiggja lögg í glas.
Bandaríkjamaðurinn þáði boðið, en hafði nokkrar áhyggjur af
því, hvort hann kynni sig sómasamlega á svona fínum st.að. Ekki
minnkuðu áhyggjur hans, þegar skartklæddir þjónar fylgdu hon-
um eftir hverjum ganginum á fætur öðrum, og þegar hann loks
kom inn í fínan sal, féll honum loks allur ketill í eld, því þar
stóð hann augliti til auglitis — ekki aðeins við hertogann, heldur
einnig Elísabetu drottningu, móður hennar og systur.
Hann stóð þarna eins og illa gerður hlutur og reyndi að ímynda
sér, hvort hann ætti fremur að hneygja sig djúpt eða gera hné-
beygju — eða yfirleitt hvað hann ætti að gera. Sömuleiðis hafði
hann ekki hugmynd um, hvernig ætti að titla þessar tignu konur.
En áður en hann hafði komist að niðurstöðu, sagði hertoginn
kæruleysislega:
„Eg býst við, að þér þekkið alla viðstadda — hvað viljið þér
drekka?“ B.W.
GERT VIÐ SKIPSLEKA í EINNI KÖFUN.
Ein köfun nægði til að gera við leka á botni farþegaskips í höfn-
inni í Kíev, er í fyrsta sinn var notað nýtt tæki til logsuðu niðri í
vatni. Nefnist tækið Neptun.
Tækið var gert af hópi verkfræðinga undir forustu Igor Savigtsj,
og er sver vír notaður sem rafskaut. Þar sem logsuðan fer fram
myndast gufu- og gasbólur og halda þær vatninu frá logsuðustaðn-
um.
APN.