Úrval - 01.12.1974, Síða 63
61
1972 lét Albert Seedmcin af störfum
leynilögregluforingja við lögregluna í New York City.
Hann hafði ráðið yfir þrjú þúsund manna
leynilögregluliði og átti heiðurinn af því að rátða
sumar þekktustu og dramatískustu glæpagátur síns
tíma. Svo er sagt, að enginn hafi nokkru sinni
litið út, borið sig eða hljómað meira í samræmi við
almenna hugmynd um leynilögregliiforingja
en Al Seedman. En þjóðsagan um liann á fremur
rætur að rekja til árangurs lians heldur en
framkomu. Hinn furðulega drjúgi árangur hans áttii
áreiðanlega rót sína að rekja til hins sjaldgæfa
hæfileika, sem hann hafði til að benda nákvæmlega
á þann þátt, sem leiddi til þess að hið óráðanlega
var ráðið. lívað eftir annað sýndi hann næstum
ofurmannlega getu til að ráða fram úr flóknustu
málum, of oft til að um tilviljun gæti verið að ræða.
Sem dæmi um hæfni hans rekjum við hér sögu
um sorglegan atburð, sem gerðist á fögrum
sumarmorgni fyrir 7 árum.
ALBERT SEEDMAN OG PETER HELLMAN
um, að DeSiero er kominn á stað-
inn. Höfuð stúlkunnar liggur niður
á bringu hennar; hún stynur. Hann
lyftir höfðinu upp. Augun eru op-
in, en hann sér aðeins í hvítuna.
Hann veit af reynslu, að það er til-
gangslaust að ávarpa hana. Af skil-
ríkjum hennar kemur fram, að hún
er Nancy McEwen, 17 ára gömul.
Ekkert kemur fram af skilríkjun-
um um, að hún eigi vanda til að fá
krampaköst eða yfirlið. Það sér
ekki á líkama hennar. Hvað hefur
komið fyrir hana?
DeSiero kallar eftir sjúkrabíl og
farið er með stúlkuna á Coney Is-
land sjúkrahúsið. Þar reyna lækn-
arnir allt sem í þeirra valdi stend-
ur — rafmagnsörvun, adreanlin-
inngjafir, hjartahnoð. Ekkert hríf-
ur. Kl. 11.15 er Nancy McEwen
úrskurðuð dáin. Og það er ekki
fyrr en þá, að læknarnir uppgötva
vinstra megin á höfði hennar,
undir síðu hárinu, lítið, blóðlaust
sár eftir byssukúlu.
Þegar hér er komið sögu er sól-
skinið brennandi á Belt Parkway.
Þá gerist það að svartur Fordbíll
nemur staðar á slysstaðnum. Al-
bert Seedman stígur út úr aftur-
sætinu og gengur yfir að Camaro-