Úrval - 01.12.1974, Síða 77
NÝJA FORYSTAN í BANDARÍKJUNUM
75
ast að kjarna vandamálsins, hvort
sem um var að ræða varnarmál,
skattamál, landbúnað, heilbrigðis-
mál, menntun eða velferðarmál.
Ákveðnar skoðanir Fords mótuð-
ust á kreppuárunum, þegar hann
var ungur drengur í Michigan, á
„rugby“völlum menntaskólans og á
þilfari flugmóðurskipsins, sem hann
var á í heimsstyrjöldinni. Það er
ekkert launungarmál, hvaða skoð-
anir hann hefur. Án þess að skamm-
ast sín fyrir fylgir hann öllum hin-
um „hefðbundnu dyggðum“, Banda
ríkjanna, sem eru: einstaklings-
frelsi, sjálfstraust, dugnaður við
vinnu, heiðarleiki, að gefa keppi-
nautunum tækifæri, friðhelgi fjöl-
skyldunnar og föðurlandsást. Hann
telur, að ríkisvaldið sé til að
tryggja, að allir borgarar fái jöfn
tækifæri til að lifa lífi sínu í sam-
ræmi við eigin getu og vilja, en
hlutverk ríkisins sé ekki að skipu-
leggja og stjórna lífi einstakling-
anna eftir hentugleikum stjórn-
valda.
Enginn getur spáð nákvæmlega,
hvernig Ford forseti hyggst beita
sjónarmiðum sínum til að leysa hin
brýnu og miklu vandamál, sem
hann hefur „erft“ frá fyrirrennnara
sínum. Það verður vissulega ein-
staklega örðugt og, á stundum,
einkar sárt að glíma við og ráða
við vandamál verðbólgu, rýrnandi
náttúruauðlinda, varna, umhverfis-
verndar og bágra kjara minnihluta-
hópa, og ennfremur við vandann
að treysta mikilvæg tengsl við tr-
lend ríki og finna friðsamlega
lausn í samskiptum við þjóðir, sem
enn halda því berlega fram, að
þær stefni að því að eyðileggja
vestrænt lýðræði.
Ég tel samt, að bandaríska þjóð-
in hafi nú til að bera mikla vel-
vild og orku, sem virkja má. Þjóð-
in er reiðubúin að færa fórnir, ef
henni er sýnt fram á, hvers vegna
fórna er þörf og hvert gagn þær
gera.
Það verður verkefni leiðtoga
þjóðarinnar að virkja þessar miklu
mannlegu auðlindir.
2. NELSON ALDRICH R0CKEFELLER
eftir ALVIN MOSCOW.
Þessi maður, sem átti mjög auð-
uga afa í báðar ættir, hefði getað
orðið feiknarlegur glaumgosi. Hann
leit vel út, var heillandi í fram-
komu og lífsglaður og fékk í arf
meiri auð en tíu auðnuleysingjar
geta komið í verk að eyða á æv-
inni, samanlagt. Hann kaus þess í
stað að verða „trúboði“ í áhættu-
sömu spili stjórnmála.
Hann skelfdist við tilhugsunina
um að stunda skemmtanalíf og
leiki. Þegar aðstoðarmaður minnt-
ist á, fyrir ekki allslöngu, að hann
kynni að hafa gert það, svaraði
Rockefeller: „Þú veist vel, að ég
hefði dáið úr leiðindum."
Sem varaforseti Bandaríkjanna
fær Nelson Rockefeller nýja köll-
un í lífinu. Hann mun, spái ég,