Úrval - 01.12.1974, Blaðsíða 122

Úrval - 01.12.1974, Blaðsíða 122
120 ÚRVAL Um morguninn hélt flokkurinn svolítið lengra í áttina til Pawnee- tjaldbúðanna samkvæmt áætlun, en svo beið hann, þangað til Halti- Bjór hafði tekið sér stöðu á stað, þar sem sókn Pawneemanna mundi verða hörðust. Hann fann sér stein, lamdi staurinn niður og batt sig við hann. Það kváðu við hróp, og „Fólkið okkar“ gerði árás á vestur- hlið þorpsins. Pawneemenn gerðu gagnárás og komu fljótlega auga á Halta-Bjór, þar sem hann stóð bundinn við staurinn með riffilinn tilbúinn. Þeir bjuggust við, að hann hleypti af, svo að fremstu reiðmennirnir sveigðu til hliðar til þess að forð- ast kúlur hans. En þegar hann lét ekki verða af því að hleypa af, þá réðust þeir, sem komu á eftir þeim fremstu, gegn honum, og einu'm tókst að stinga spjóti í gegnum vinstri öxl hans og skildi spjótið með hakinu á endanum eftir í sár- inu. Halti-Bjór reif burt spjótið, en um leið rifnaði stórt stykki af haldi einnig burt. Þetta var slæm byrjun. Ólguvatn hafði ekki birst ennþá. Og hann sást hvergi, þegar önnur árásinu var gerð. Einu sinni tókst Pawneemanni að hitta Halta-Bjór með spjóti. í þetta skipti lenti það í vinstri fæti honum án þess að særa hann mikið. Halti-Bjór reif burt spjótið með fyrirlitningarsvip og lagði bæði spjótin við hlið sér. ef ske kynni, að hann þyrfti að gripa til þeirra. Ólguvatn birtist loks, þegar þriðja árásin var gerð. Þetta var hávaxinn og myndarlegur höfð- ingi, koparbrúnn á hörund. Hann áleit, að Halti-Bjór væri illa særð- ur, og því reið hann hiklaust í áttina til bundna mannsins. Halti- Bjór miðaði á hann og hitti hann. Höfðinginn steyptist af baki stein- dauður. Svo hlóð Halti-Bjór riffil- inn að nýju, og tókst honum að fella annan stríðsmann. Undanhald Pawneemanna var nú að hefjast, en á undanhaldinu tókst nokkrum ríðandi stríðsmönnum að særa Halta-Bjór með spjótum sín- um. Nú hafði hann verið særður allmörgum sárum, sem blæddi mik- ið úr. Og það var úti um hann, þegar fimmta Pawneemanninum tókst að leggja hann spjóti. Hann stakk því í síðu hans aftanverða. svo að út gekk um brjóstið. Halti- Bjór greip í spjótsoddinn, sem stóð út úr brjósti honum. Hann var í þann veginn að detta fram fyrir sig, en honum tókst að hamla gegn því nógu lengi til þess að geta haf- ið kveðjusöng sinn: „Aðeins stein- arnir endast að eilífu . . .“ Það fór skjálfti um líkama hans, sem batt enda á söng hans. Hann kippti í spjótið og reyndi að draga það allt í gegnum sig og út að framan, en þá brást honum styrk- ur til þess, og hann féll fram yfir sig og lá þarna endilangur í ryk- inu á orrustuvellinum, Hoppandi-Snákur lýsti því yfir, að Halti-Bjór skyldi grafinn að höfðingjasið, og hár trépallur var síðan reistur á milli þriggja baðm- ullartrjáa við bakka Platteárinnar. Og þar var hinn sundurtætti lík- ami lagður til hvíldar, allhátt yfir jörðu.. Staurinn, sem hann hafði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.