Úrval - 01.12.1974, Síða 129
127
Mér leiddist einhver lifandis
ósköp í skólanum. Á hverjum
morgni, þegar ég var á leið upp
Randersbrekkurnar í frosti og
slabbi, var óskadraumurinn minn
sá, að nú sæi ég gegnum morgun-
rökkrið glampann af rauðum log-
um, sem sleiktu morgunhimininn,
og að eyrum mér bærist hrópið:
Húrra, húrra, skólinn brennur!
Jens Otto Krag.
Ástæðan til þess, að segulbanda-
kennsla í málum vinnur svo á sem
raun ber vitni er sú, að öfugt við
málakennara hefur segulbandið
fullkominn framburð, gerir aldrei
skyssur og verður hvorki óþolin-
mótt eða þreytt.
Enskur skólabæklingur.
44<-<-<-<-<-<-<<-« «««<««« <■
Skólinn finnur til vonbrigða
vegna þess, að nýja kynslóðin sýnir
ekki þakklæti fyrir allt það amst-
ur, sem henni er hlíft við, og nýja
kynslóðin finnur til vonbrigða
vegna þess, að hún fær ekki að
læra neitt af eigin reynslu, fær
ekki forvitni sinni svalað og lærir
ekki að hugsa sjálf.
Trygve Braatþy.
$««««««« < <-<-<■< <<<<<<■
Ég ber fyllsta traust til æskunn-
ar. Til uppreisnargirni æskunnar.
Án hennar sætum við enn í húðum
og feldum og nöguðum rætur.
Poul Henningsen.
■<«««-«< <•<•<•< <«-««««
Hugsaðu þig tvisvar um — og
þegiðu svo.
Þegar ég var fjórtán ára, var
pabbi svo ótrúlega fávís, að ég gat
næstum ekki þolað hann. En þeg-
ar ég var orðinn tuttugu og eins
árs, kom mér á óvart að uppgötva,
hvað honum hafði farið mikið fram.
Mark Twain.
*«««<«««« «««««
Það er alltaf best að segja sann-
leikann — nema náttúrlega sé mað-
ur sérlega góður lygari.
Jerome K. Jerome.
«<<<<<<<<<<<< <«««««<■
Æskan er dásamleg. Það er
skömm, að henni skuli vera sóað á
börn.
Bernard Shaw.
«««««««««<-«««
Hið ógerlega tekur bara lengri
tíma.
Sir Winston Churchill.
<«««<«««««««««
Það er meira virði að hjálpa gam-
alli konu yfir götu en að elska
mannkynið.
Soya.
«««<«««««««<««
Sértu í vafa — segðu þá sann-
leikann.
Mark Twain.
«««<«<<«-«<-««< «« <
Viljir þú vera hamingjusamur
einn dag, skaltu drekka þig fullan.
Viljir þú vera hamingjusamur þrjá
daga, skaltu kvænast. Viljir þú vera
hamingjusamur í viku, skaltu slátra
svíni og éta það. Viljir þú vera ham-
ingjusamur alltaf, skaltu erja jörð-
ina.
Kínverskt máltæki.
Kínverskt spakmæli.