Úrval - 01.04.1976, Side 11

Úrval - 01.04.1976, Side 11
HVlLEITA KARLAR EKKI HJÁLPAR? 9 byggð á þessari karlmennskuhug- mynd,” segir Sherman. „Margar eiginkonur álíta að hjá karlmönnun- um geti þær leitað að siðferðilegum og andlegum styrk og á hann geti þær treyst. Þegar konan lítur þannig á málin, styrkir hún manninn sinn í sömu trú. Hún getur skammað hann fyrir að vera ekki blíðari og opnari eða fyrir að vilja ekki hjálp vegna fjölskylduvandamáls — og á sama tíma verið trú þeirri hugmynd karlmennskunnar, að viðurkenna ekki mannlegan veikleika.” Allir, sem málið varðar, þurfa að vinna saman að vandamálum til- finningalegs eðlis. Og hver sá, sem er tengdur vandamáli karlmanns, ætti líka að sýna vilja sinn til að leita aðstoðar. ,,Eiginkonan ætti ekki að segja við manninn sinn: ,,Það er eitthvað að þér þú þarft að fá hjálp. ’ ’ Það sem hún ætti að segja: ,,Ég ætla að skreppa svolítið og mig langar til þess að þú komir líka — okkar beggja vegna. Með því að biðja hann að koma þeirra beggja vegna en ekki vegna þess, að hann þarfnist þess — gefur hún honum tækifæri til að fínna , ,einhvern’ ’ án þess að skella skuldinni á hann einan. Það hefur aldrei verið til nokkur manneskja, sem hefur ekki einhvern- tímaþarfnast hjálpar annarra. Margir karlmenn eru hreyknir af karl- mennsku sinni; en með því að kenna þeim að þeir verði alltaf að vera sterkir og megi aldrei sýna við- kvæmni, sem við eigum öll, leggjum við þunga byrði á herðar þeim. Byrði, sem aðeins fáum heppnast að axla. Menn eru farnir að skilja, að ef til vill skaði það þá ekkert að gangast við því, að þeim mistakist við og við. Sherman segir: „Vissu- lega eru það konur, sem fyrst leita til okkar, í fíórum tilfellum af hverjum fimm — en fyrir tíu árum hefðu það verið í níu skipti af hverjum tíu.” Það er erfitt fyrir flesta karlmenn að taka ráðgjöf felagsráð- gjafa, jafnvel lítillækkandi. Til þess að árangur náist, þarfnast þeir hjálpar þeirra, sem í kringum þá eru, þeirra, sem þykir vænt um þá. HANN VlSAR VEGINN... Einn úr söfnuðinum mínum bað á dögunum um leyfi til að taka guðsþjónustu mína upp á segulband, svo hann gæti lofað konu sinni, sem lá lasin heima, að heyra hana. Hann fékk auðvitað leyfið, og síðan fékk ég bandið lánað hjá honum, því mig langaði að heyra hvernig predikun mín hljómaði. Ég hlustaði með ánægju á inngangsbænina, á tónið og fallegu sálmana, og þegar prédikunin hófst, hallaði ég mér aftur á bak I hægindastólnum til þess að dæma hana hlutlaust. Tæpum hálftíma seinna vaknaði ég við þýða orgeltónana í síðasta sálminum. Sr. S.B.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.