Úrval - 01.04.1976, Blaðsíða 116

Úrval - 01.04.1976, Blaðsíða 116
114 ÚRVAL mennina örlögum sínum á vald, rétt sem óveður var í uppsiglingu. Þriðji dómarinn skilaði séráliti og studdi skipstjórann. Hann taldi, að ekki hefði verið unnt að koma í veg, og sagði að þetta hefði verið eins og „hvert annað slys, sem alltaf getur viljað til.” Það eina bitastæða, sem kom út úr þessari rannsókn, var endurbót á selveiðilögunum, þar sem kveðið var á um að talstöðvar skyldu vera í öllum skipum. Þar að auki var komið upp slysasjóði, sem styrkti þá sem hlutu varanlegt tjón af hrakförum á borð við þessa og eins eftirlifandi fjölskyldur hinna látnu með smáupp- hæð. En hvorug útgerðin, sem stóð bak við skipstjórana, er sendu menn- ina út í dauðann, var talin skaðabóta- skyld. Margir úr áhöfn „Stephanos” höfðu gefið sjálfum sér það fyrirbeit, að sigla aldrei framar undir stjórn Abrams Kean. En það hindraði Abe gamla í engu. Hann hélt áfram sem skipstjóri á selfangara í tuttugu ár enn, og árið 1934 fékk hann heiðurs- merki af því að þá hafði hann sett nýtt met: Drepið milljón kópa í skipstjórnartíð sinni. Meirihluti þeirra 55, sem lifðu hrakningana af, hlutu meiri og minni örkuml. En margir héldu þó aftur til sjós, og sumir meira að segja aftur út á ísinn, svo sem George Tuff, sem hélt áfram selveiðum í tíu ár cnn, þar til hann, eins og konan hans sagði, „var útslitinn eins og gamalt vélarræksni.” Wes Kean fékk skárra skip og varð síðar skipstjóri á gufuskipi. Cecil Mouland er enn á lífi og minnist heimkomunnar til fæðingar- bæjar síns eins og hún hefði gerst í gær. , Jessie vildi ekki koma og taka á móti mér á bryggjunni. Hún óttaðist, að hún færi að hrynna músum í allra augsýn. Svo ég axlaði sjópokann minn og arkaði heim til mömmu. Þar voru þau öll saman, meira að segja Jessie. Þau voru öll háskælandi, því þau fengu fyrst tilkynningu um, að ég hefði farist, en síðar var þeim svo sagt, að ég væri á Iífi, og þetta allt saman var þeim um megn.” Nú fóru í hönd margvíslegir hátíðisdagar fyrir Cecii Mouland. Þau Jessie giftust haustið 1915, og þegar þau fóru í brúðkaupsferð með strand- ferðaskipi upp með norðurströnd Bonavistaflóa var þeim hvarvetna fagnað með fallbyssuskotum. Sagan um ást þeirra og dugnað Cecils í hrakningunum hafði flogið um öll sjávarþorpin á löngum kafla. Þau bjuggu í hamingjusömu hjónabandi, þar til Jessie dó árið 1969. Cecil er nú kominn mjög til ára sinna, en þegar honum verður hugsað til skelfingarnóttanna á ísn- um, minnist hann afa síns ætíð með þakklæti. Því það var gamli maður- inn, sem var þess valdandi, að Cecil hafði vasann fullan af rjóli. ★
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.