Úrval - 01.04.1976, Blaðsíða 44
42
rauðhærðan dreng með freknur. Og
enginn hafði reiknað með að sá, sem
leitað var að, gengi um Ijóslifandi.
Bóndi nokkur, Andy Walker, fann
hann. Eða réttara sagt Terry fann
Andy. Hann kom að bílnum hans og
starði soltinn á matarpakka, sem lá í
framsætinu. Þegar Andy kom auga á
hann, spurði hann: ,,Og hvað heitir
þú, ungi maður?”
Þegar hann heyrði svarið, stökk
ÚRVAL
hann upp í bílinn og þandi bílflaut-
una af öllum mætti.
Drengurinn, sem vegna einhvers
kraftaverks lifði þessar hörmungar af
og komst næstum því af eigin
rammleik heim til sín aftur, er núna
17 ára. Ég geymdi þessa blaðaúr-
klippu sem þögla þakkarbæn. Þökk
fyrir, að við fengum hann aftur, og
með þakklæti fyrir, að það er til fólk,
sem á stund neyðarinnar reynist
sannir vinir og nágrannar.
Reið húsfreyja við bónda sinn: Heldurðu ég viti ekki, að þú ert svona
rólegur af ásettu ráði!
Wenzel.
HVAÐ Á AÐ GERA í HITASÓTT?
Margir halda að hætta sé á ferðum ef einhver fær hita, þótt ekki sé
nema 38 gráður, og vilja fá lyf eins og asperín til að lækka hann eða
bakteríudrepandi töflur eða hylki. Þetta er hin mesta fjarstæða. Þótt hiti
stafi af sýklum er líkaminn oftast einfær um að ráð niðurlögum þeirra án
nokkurrar slíkrar hjálpar, og hitinn er einmitt fangaráð líkamans til
þess. Sýklar þola yrirleitt illa hita, og þeim munverrsem hitinn er hærri.
Því er hár hiti, 39—40 stig og jafnvel þaðan af meira, merki um
kröftugan varnarmátt líkamans, og hann á ekki að skerða með
hitalækkandi lyfjum, og jafnvel ekki að grípa til fúkalyfja nema vitað sé
eða sterkur grunur um, að um lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða, eins
og t.d. lungnabólgu eða heilahimnubólgu. Ef sjúklingur fær háan hita
eru líkur til að honum batni fyrr heldur en ef hitinn er lágur. í hálsbólgu
fer hitinn oft upp í 40—41 stig, og oftast læknast hún sjálfkrafa á
þremur dögum. Sé einu sinni farið að gefa fúkalyf við henni er meiri
hætta á að hún taki sig upp á ný.
í háum hita getur verið gott að setja heita bakstra á kálfana, hálftíma 1
senn. Það dregur blóð til ganglimanna og bætir líðan án þess að lækka
líkamshitann. Rétt er að nærast sem minnst en drekka ávaxta- eða
grænmetisdrykki.
(Úr Heilsuvernd).