Úrval - 01.04.1976, Page 75

Úrval - 01.04.1976, Page 75
TENGSL MlN VID ÍRA 73 allt.” Þetta var alveg rétt. írar skynja kvölina og þjáninguna og þá einkum sjálfskaparvítin. Það er hægt að fyrirgefa óvini. Það er erfiðara að fyrirgefa sjálfum sér. Ég gekk á milli tveggja ömurlegra húsaraða í áttina að grágræna Shann- onfljótinu, sem streymdi þögult sína leið. Ég var svöng. Mér varð hugsað til Maríu og Kötu, sem höfðu aðeins fengið te og brauðsneið í kvöldmat- inn. Svo mundu þær flækjast um göturnar á eftir í þeirri von, að þær fyndu einhvers staðar penny. Svo færu þær heim, og mættu eiga von á, að daunill vætan seytlaði svo niður til þeirra af efri hæðinni. Við fórum að sjá „Glerdýrin”. Ég hélt, að kannski væri það aðeins á færi írskrar leikkonu að túlka per- sónuleika taugaveiklaðrar Suðurríkja- konu á sannan hátt. Þær áttu báðar heima í litlum löndum, sem beðið höfðu ósigur, þar sem dýrðina var aðeins að finna í fortíðinni. María sagði, að það hefði verið „langdreg- inn saknaðarblær í rödd” aðalleik- konunnar. Kata sagði: ,,Hún hafði svo ásækin augu. ’’ Næsta kvöld heimsóttu þær syst- urnar mig í gistihúsið. Ég bað þær um að syngja hina viðkvæmnislegu söngva írlands, og þær urðu við beiðni minni. Þær sungu ,,Danny Boy”, „Galwayflói” og ,,Ég fer með þig heim aftur, Kathleen”. Kata hafði allmikla altrödd, en María hafði mjúka sópranrödd. Ég er alveg laglaus og varð því alveg steinhissa á getu þeirra. Kata var alveg stein- hissa á þessari undrun minni. ,,Hver lifandi mannvera getur sungið,” sagði hún við mig. „Þannig skapaði guð okkur.” Ég bað systurnar og móður þeirra að borða með mér kvöldmat næsta kvöld. Tíndar höfðu verið saman ýmsar viðhafnarflíkur og ýmislegt stáss úr allri herskálabyggingunni til þess að lána frú Flynn af þessu til- efni. í leigubílnum á leið inn í bæinn krossaði hún sig í hvert skipti sem við fórum fram hjá krossi, presti, nunnu eða kirkju. Ég óttaðist, að lánsblússan og svart- og hvítköflótta taftpilsið, sem hún hafði einnig fengið að láni, yrðu orðin gatslitin áður en við settumst að snæðingi. ,,Það er synd, að stúlkurnar skuli verða að hætta skólagöngu svona fljótt,” sagði ég. ,Já, það er það,” svaraði hún. ,,En þær eru nú orðnar stórar og sterkar stúlkur, og þær geta þénað vel yfir í Englandi. ’ ’ „Hvernig litist þér á það, ef þær fengju tækifæri til þess að komast til Ameríku og njóta þar dálítið meiri menntunar?” spurði ég. ,,Það er draumur hvers íra að komast til Bandaríkjanna,” svaraði hún. Loks var ég farin að tala við hana um það, sem hafði verið efst í huga méríheila viku: ,,Gæti móðir sleppt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.