Úrval - 01.04.1976, Side 86
84
ÚRVAL
Þessa pillu þarf að gefa tíkinni átta
daga í röð í upphafi tíðabils hennar,
og þá verður ekkert úr lóðaríinu.
Tíkareigandinn losnar við öll óþæg-
indi af tíkareign sinni. Þar við bætist,
að pillan getur orðið til þess að fækka
flækingshundum eða hundum sem
illa eða ekki er hugsað um, því
raunin er sú, að þegar verið er að gefa
hvolpa aðeins til þess að þurfa ekki að
farga þeim, lenda þeir iðulega í
höndum þeirra, sem hafa hvorki
kunnáttu, vit né vilja til að sinna
hundi, ala hann og siða, og þetta
verða þeir hundar, sem mestum
óþægindum valda.
FWC
SKYNDISKOÐUN BÍLVÉLA Á SEX MÁNAÐA FRESTI.
Engin bifreið fær lengur að aka um götur Alma-Ata, höfuðborgar
Kasakstan, nema bifreiðastjórinn geti sýnt lítið kort sem staðfestir, að
hættuleg efni í útblæstri vélarinnar fari ekki yfir visst mark. Slík kort fá
menn á hálfs árs fresti hjá bifreiðaverkstæðunum, eftir að verkstæðið
hefur skoðað og stillt vélina. Þessi hálfsársskoðun er skyldubundinn.
Á síðari árum hefur rafknúnum strætisvögnum og hraðgengum
sporvögnum fjölgað mjög i Alma-Ata. Einnig hafa verið gerðar aðrar
ráðstafanir til að draga úr mengun andrúmsloftsins af völdum
bifreiðaumferðar.
APN.
PERLUFISKUR í SOVÉSKUM FLJÓTUM.
Perlufiskveiðar fara mjög í vöxt í fljótum Karelíu, Arhangelskhérað-
inu og á Kamtsjatka á austurströnd Sovétríkjanna. Fyrr á tímum, á
15. —18. öld, var mikil eftirspurn eftir rússneskum fljótaperlum.
Perlusaumur á silki, brókaði og lín var þá stundaður svo mjög, að
perluskeljum í rússneskum fljótum var nærri útrýmt.
Nú hafa sérfræðingar fundið aðferð til þess að ganga úr skugga um
það af lögun skeljarinnar, hvort hún inniheldur perlu eða ekki. Þar
með komast menn hjá því að eyðileggja skelfiskastofninn með því að
veiða að nauðsynjalausu skelfisk sem ekki inniheldur perlur.
Úr ,,Til ungrar stúlku”, eftir Richard Brinsley Sheridan:
Viltu ekki koma í garðinn minn?
Mig langar svo til þess að rósirnar sjái þig.
Helen Lawranson hefur haldið til haga orðum þjóðverja nokkurs sem
var aðdáandi hennar: ,,Hver dagur sem ég sé þig verður að hátíðisdegi.
Hjartað í mér hamast eins og poppkorn.”