Goðasteinn - 01.03.1967, Blaðsíða 89
SKIPSFÉLAGSVlSUR /9/3 (í Þorlákshöfn)
Gyðjan kvæða kallar mig
kát og blíð í lyndi,
vill ég fræði fyrir sig
fólk um ný tíðindi.
Um þá bjóða báru seims
bezt er árar lýja
og um slóðir humra heims
hreystiverkin drýgja.
Fylgir hinum fram á ver
fljótt að starfi víkur.
Magnússon hann Ari er
ærið burðaríkur.
Þó að aldan yggli stæk,
ofur lyndisglaður,
Sigurjón á Lambalæk
liðs er góður maður.
Pál frá Árkvörn seggir sjá
sjafnar þjóna iðju.
Áður kaus sér einni hjá
ástir menntagyðju.
Brynjólf nefna mann einn má
margt, sem vel er gefið.
Kirkjulæk cr kominn frá
kænn við sjávarþrefið.
Horskur vel og hugrakkur,
herma lýðir skýrir,
Einarssonur Ólafur
öldufáknum stýrir.
VORVÍSUR
Sunnan sólin blíð
sendir geisla þýð,
vorsins vermir tíð,
vekur dofinn lýð.
Dauðans leyst af dróma
dafna blómin smá
vonin hölum hjá
hýrnar þá.
Hjörð í haga brátt,
hress með nýjan mátt
hoppar heldur kátt,
hana mæðir fátt.
Syrtir allt í einu
að með dimmgrátt él
yfir hauðurs hvel
holt og mel.
igio
Norðangola grá
grimmdarleg og þrá
hendir hvítum snjá
hauður ofan á.
Hafís heljartökum
hólma Garðars nær
lífi fargað fær
fyrst, sem grær.
Seinna sólin þó
sigrar frost og snjó.
Þiðnar foldin frjó,
fuglar kvaka í mó.
Hafís burtu hverfur
hásumars um tíð.
Þá kann lánast lýð
lukkan blíð.
Goðasteinn
87