Goðasteinn - 01.03.1967, Blaðsíða 46
skóg. Við höfðum ekki tíma til að skoða hann að ráði, komum þar
aðeins af baki. Við förum fram hjá Hálsi, sem er næsti bær. Þar
er forn kirkja, lítil, svört og turnlaus og með einum litlum glugga
á norðurhlið, suðurhlið sá ég ekki. Bærinn snýr í norður, með átta
standþiljum, og munu óvíða svo mörg þil á Norðurlandi. Túnið
er vel girt mcð garði. Það var fyrsti túngarðurinn, sem ég tók eífir.
Þegar við komum austur í Ljósavatnsskarð, saknaði Indriði
bögguls, er hann hafði gleymt í Vaglaskógi, og skildi þá við okkur
og sneri aftur, en kona hans fór heim á bæ í skarðinu og beið hans.
Saknaði ég Indriða, þó við gætum farið hraðara hér eftir. Þegar
kemur austur úr Ljósavatnsskarði, breytist stefnan í norður, norður
Köldukinnina. Er þá Skjálfandafljót á hægri hönd, allfjarri fyrst, en
Kinnarfjöllin á vinstri. Við komum að Yztafelli um háttumál, var
verið að rcka ærnar. Var eigi að tala um annað hjá ráðherrafrúnni
en bíða cftir kaffi. Ég var eitthvað tregur til þess fyrst, vegna
hestanna, en synir hennar, sem búa á jörðinni, buðust til að gæta
þeirra.
Viðstaðan inni drógst í eina og hálfa klukkustund, en þegar við
komum út, hafði verið tekið út úr öllum hestunum og þeir dreifðir
um allt tún. Varð mér að orði, að þetta hefðu Sunnlendingar ekki
gert. Og maður utan úr Kinn beið úti allan tímann, til að geta leið-
beint okkur út eftir Kinninni, en vildi verjast inflúenzu í Yztafelli.
Það er um miðnætti, þegar við förum þaðan og förum nú skemmstu
og greiðustu leið út Kinnina, yfir tún og engjar, þegar þurfa þykir,
en í gegnum öll girðingahliðin, 10-12, og komum að Björgum kl. 4
um morguninn. Vóru þá allir í fasta svefni og áttu eigi von á þess-
um gestum. Það á ekki við, að ég lýsi viðtökunum þar, en einna
lengst mun ég muna andlitið á gamla manninum, tengdaföður mín-
um, þar sem hann lá nývakinn í rúmi sínu og þegjandi góðan tíma,
eftir að við komum inn.
Það varð nú lítið úr verki fyrsta daginn. Þó fór ég upp á bæjar-
fjailið til að litast um. Fjallið er hátt, bratt og vaxið grasi, Iyngi,
víði og smákjarri. Ég sezt og hvíli mig á einhverjum álitlegasta
blcttinum. Bærinn er fyr.ir neðan, skammt frá fjaliinu. Á, scm
Kálfsá heitir, steyoist t gljúfri ofan fjallið og rennur skammt fyrir
sr.p.n.an bæinn niður í SkjálfandafIjót, sem er skammt fyrir neðan
44
Goðastemn