Goðasteinn - 01.09.1968, Page 5

Goðasteinn - 01.09.1968, Page 5
Sr. Sváfnir Sveinbjarnarson: Breiðabóls- staður 1 Fljótshlíð í Rangárþingi nær miðju stendur prestssetrið Breiðabólsstaður í Fljótshlíð uppi í lágri og grösugri hlíð og horfir við suðri og sól. Bæjaröð þétt er á báðar hliðar, frá austri til vesturs, og raun- ar tvöföld á köflum inn eftir Hlíðinni. Að baki byggðinni eru lágir ásar yzt, en fara hækkandi til norðausturs og eru þetta undir- hlíðar Þríhyrnings og Tindfjalla, sem gnæfa yfir sveitinni. I austri rís Eyjafjallajökull „hátt yfir sveit og höfði björtu svalar/ í him- inblámans fagurtærri lind“, og má hann í tign sinni og reisn heita höfuðprýði þessa umhverfis. í hásuðri blasa Vestmannaeyj- ar við, aðskildar frá láglendi Landeyjanna af mjórri Ránarrönd, frá Breiðabólsstað séð. Til vesturs takmarkast útsýni af Núps- fjalli, lágum múla, sem skagar fram á sléttlendið. Breiðabólsstaðar í Fijótshlíð er getið í Landnámu, en þá aðeins í sambandi við landamerki í landnámi Ketils hængs. Saga stað- arins hefst, að segja má, með Jóni helga Ögmundarsyni, er fyrst- ur varð biskup á Hólum, en hann var fæddur á Breiðabólsstað árið 1052 og bjuggu þar þá, á sjálfseign sinni, foreldrar hans, Ög- Goðasteinn 3

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.