Goðasteinn - 01.09.1968, Síða 11
djáknar." Ennfremur segir þar að árið 1326 braut kirkju á Breiða-
bólstað í Fljótshlíð fyrir ofviðri laugardaginn fyrir páska, 22. marz.
í Vilkinsmáldaga frá 1397 er allt hið sama talið og nokkru
aukið við, einkum því, sem segir að sr. Hafliði hafi lagt kirkj-
unni. Er þ. á. m. land hálft að Konungsmúla, svo að kirkjan
hefur eignazt þá jörð alla, 3 hundruð fjöru, er liggur við Maríu-
fjöru, skógur er liggur hjá Stapa. Einnig 4 kýr og 3 tigir ásauðar,
messuklæði og klukka og loks kaleikur, er stendur 12 aura. Mætti
e. t. v. láta sér detta í hug að þetta gæti verið kaleikur sá, sem
kirkjan á enn í dag og er einhver hinn ágætasti gripur sinnar
tegundar og gæti sennilega aldurs síns vegna hafa borizt kirkj-
unni um hendur Hafliða prests. Er þó til önnur saga af uppruna
hans, sem hnígur að því, að frá álfum sé kominn.
Um þessar mundir voru annexíukirkjur frá Breiðabólsstað að
Lambey, Þorvarðarstöðum og Ey. Skyldi syngja þar annan hvern
helgan dag af Breiðabólsstað á hverjum stað. Síðar var einnig
annexía á Velli og bænhús í Vatnsdal.
Þess eru dæmí frá fyrstu öldum kristninnar hér á íandi og
raunar allt fram undir siðaskipti, að prestar hafi haft veitingu
fyrir tveimur eða fleiri brauðum samtímis og þá haft aðra presta
í sinni þjónustu. Svo virðist hafa verið um a. m. k. tvo presta
er héldu Breiðabólsstað á 15. öld, þá sr. Þórarin Andrésson, er
einnig hélt Hallormsstað og sat þar, og sr. Jón Pálsson Maríu-
skáid, sem einnig hélt Breiðabólsstað um tíma, en átti annars
alla sína sögu norðanlands. Á 15. og 16. öld, bæði fyrir og eftir
siðaskiptin, virðast komast á viss tengsl milli Breiðabólsstaðar og
Skálholtsstóls, en þau voru í því fólgin að ráðsmenn í Skálholti
hljóta veitingu fyrir Breiðabólsstað hver eftir annan. Þannig er
um Jón Gíslason, Ögmund Pálsson, Þorleif Eiríksson og Jón
Bjarnason, sem hver af öðrum eru ráðsmenn í Skálholti og síð-
an prestar á Breiðabólsstað.
Sr. Ögmundur Pálsson var vestfirzkrar ættar og hafði menntazt
bæði innan lands og utan í Englandi og Hollandi. Hann varð
kirkjuprestur í Skálholti og jafnframt skipstjóri á skútu Skál-
holtsstaðar og umboðsmaður Stefáns biskups Jónssonar í við-
skiptum stólsins utanlands. 1503 eða 4 verður hann prestur á
Godasteinn
9