Goðasteinn - 01.09.1968, Qupperneq 14
fékk Breiðabólsstað sr. Erasmus Viíladsson, józkur maður, sem
Gísli biskup Jónsscn hafði fengið til kennara að Skálholtsskóla.
Varð hann tengdasonur biskups og fékk, er hann hætti kennslu,
fyrst Garða á Álftanesi en konungsveitingu fyrir Odda 1565 og
fyrir Breiðabólsstað 10 árum síðar og hélt staðinn til dauðadags
1591. Hann var mikilsmetinn maður, hafði samið sig að hérlend-
um háttum og náð fullkomnu valdi á málinu. Þótti hann mjög
koma til greina við biskupskjör eftir lát Gísla biskups Jónssonar.
Næst koma við sögu feðgar þrír, er héldu staðinn hver eftir
annan á annað hundrað ár. Var þeirra fyrstur sr. Sigurður
Einarsson skálds í Eydölum, Sigurðssonar, og bróðir Odds bisk-
ups og mun hafa fengið staðinn með tilstyrk hans árið 1591. Hann
varð prófastur og hélt staðinn til 1626 að hann sleppti honum í
hendur sonar síns, sr. Jóns Sigurðssonar, er haft hafði vonarbréf
fyrir staðnum frá 1609. Eftir fráfall sr. Jóns um 1640 tekur fljót-
lega við sonur hans, sr. Magnús Jónsson og sat hann staðinn
fram yfir aldamótin 1700 eða alls nokkuð yfir 60 ár, lengst allra,
er þjónað hafa Breiðabólsstað. Er talið, að hann hafi orðið 101
árs, var hann blindur og karlægur síðustu árin. Hélt hann þá
aðstoðarpresta og frá 1686 var hjá honum aðstoðarprestur sr.
Jón Torfason, prests í Gaulverjabæ, Jónssonar. Hafði hann mennt-
azt vel í Kaupmannahöfn og komið þar ár sinni vel fyrir borð, því
að hann fær, nýútskrifaður árið 1681, vonarbréf fyrir Breiðabóls-
stað. Verður hann síðan heyrari í Skálholti, þar til hann ræðst
aðstoðarprestur til sr. Magnúsar á Breiðabólsstað sem áður seg-
ir. En biðin varð löng eftir forráðum brauðsins. 1699 fær hann
endurnýjað vonarbréf sitt, og var heldur vont samkomulag með
þeim sr. Magnúsi, segja heimildir. Sr. Jón bjó að Núpi meðan
hann var aðstoðarprestur og áður en hann fékk brauðið að lok-
um um 1707, var hann búinn að missa heilsuna, varð geðbilaður
og varð því að halda aðstoðarpresta þau fáu ár, sem hann átti
þá ólifað. Beðið hafði hann eftir brauðinu í um 26 ár, er hann
loks hlaut það.
Næst greina heimildir, að sr. Snorri nokkur Jónsson fékk lög-
mannsveitingu fyrir Breiðabólsstað, en kom að engu haldi. Ann-
ar maður, sr. Þorleifur Arason rektor í Skálholti, fékk veitingu
12
Goðasteinn