Goðasteinn - 01.09.1968, Page 18
1824-26. Sagður gáfumaður og ágætur ræðumaður, en raddmað-
ur minni. Hélt hann staðinn til 1834, er sá maður fær veitingu
fyrir Breiðabólsstað, er ásamt Jóni Ögmundarsyni og Ögmundi
Pálssyni hefur varpað mestum ljóma yfir nafn staðarins, þótt
ekki yrði biskup eins og þeir og sæti flestum skemur í embætti,
eða aðeins 6 ár. Sá maður var Tómas Sæmundsson. Er saga hans
alkunn, svo veigamikinn sess, sem hann hefur áunnið sér í þjóð-
arsögunni. Gefst hér sízt tóm til að gera honum þau skil, er
verðugt væri og verður að vísa til hinnar ítarlegu ævisögu hans
eftir dótturson hans, dr. Jón biskup Helgason.
Sr. Tómas var sonar-sonar-sonur sr. Högna prestaföður og
kostaði faðir hans, Sæmundur bóndi í Eyvindarholti, einhver
mesti búhöldur um sína daga, hann til náms í Kaupmannahöfn.
Að loknu námi þar, fer hann sína frægu för suður um álfuna,
allt til Miklagarðs, en missti heilsuna vegna slæmrar aðbúðar og
féleysis á heimleið um Parísarborg. Er hann kemur út til Islands,
heldur hann fyrst norður í Aðaldal að sækja konuefni sitt, Sig-
ríði Þórðardóttur sýslumanns í Garði, Björnssonar, en hún hafði
setið í festum í full fimm ár. Hafði sr. Tómas þar vetursetu,
en sumarið eftir fer hann Sprengisandsleið, þar sem hann finnur
gróðurvin þá, undir Tungnafellsjökli, sem við hann er kennd og
Tómasarhagi heitir síðan. Sezt hann þá á Breiðabóisstað sumarið
1835 og verður árið eftir prófastur í Rangárþingi. Gerist hann
þegar hinn skörulegasti kennimaður og umsvifamikill bóndi, og
um leið afkastamikiil rithöfundur og leiðtogi í framfaramálum
þjóðarinnar. Þátttaka hans í útgáfu tímaritsins Fjölnis verður trú-
lega það, sem lengst heldur nafni hans á lofti. Freistandi er að
hugleiða, þó til lítils komi, hver afrek hans hefðu getað orðið,
ef honum hefði gefizt lengra líf og heilsa, slíkur yfirburðamaður
sem hann var á mörgum sviðum. En íslands óhamingju varð
það enn að vopni, að sjúkleiki hans ágerðist og lagði hann í
gröfina vorið 1841, tæplega 34 ára gamlan. Stærsti minnisvarð-
inn í kirkjugarðinum á Breiðabólsstað er yfir moldum hans.
Eftirmaður sr. Tómasar á Breiðabólsstað varð sr. Jón Hall-
dórsson, áður prestur til Fljótshlíðarþinga. Hann hélt staðinn til
æviloka, 1858, og var jafnframt prófastur 10 síðustu árin. Hafði
16
Goðasteinn