Goðasteinn - 01.09.1968, Page 35
tök vatna, sem falla til Kúðafljóts, eru jökulkvíslar, er koma
undan vesturströnd Vatnajökuls og falla til Langasjávar um
Langasjávarútfall til Skaftár og þaðan um Kúðafljót til hafs, um
115 km að lengd.
Ekki er auðvelt að ákveða hvert vatnasvið Kúðafljóts er,
vegna þess að Skaftá skiptist, en óhætt mun að fullyrða, að
ekki er það undir 2000 km2. Minnihluti Skaftár rennur meðfram
Síðunni og til sjávar fyrir austan Landbrotið, en aðalhlutinn
hins vegar niður með Skaftártungu að austan og sunnan vestur
í Kúðafljót. Fullvíst er, að fyrir Skaftárelda hefur áin skipzt í
þrjá hluta, en vestasta kvíslin, sem þá hét Landá, skilið miklu
fyrr við Skaftártunguhæðirnar og runnið til suðvesturs milli Und-
irhrauns, sem nú heitir Melhóll, og Leiðvallar og vestur í Kúða-
fljót, næstum því mitt á milli Sanda og Leiðvallar. Hraunflóðið
frá Síðueldum 1783 stíflaði farveg Landár og þvingaði hana fast
upp að hæðum Skaftártungu og er hún nú af flestum öðrum en
Skaftfellingum nefnd Eldvatn, en þeir kenna vatnið við þá bæi í
Skaftártungu, sem það rennur hjá, Hvamms-, Svínadals- og Ása-
vatn. Mér hefði þótt eðlilegt að láta þennan hluta Skaftár halda
sínu rétta, forna heiti, Landá, enda þótt Skaftáreldahraunið
breytti farvegi hennar.
Tungufljót kemur upp syðst á Skaftártunguafrétti og skilur að
hin víðáttumiklu heiðalönd, Búlands að austan, en Ljótastaða að
vestan. Það rennur svo áfram suður í gegn um Skaftártungu, allt
til Kúðafljóts og skiptir byggðinni í tvennt, oft til hins mesta
ó'nagræðis fyrir Skaftártungumenn, meðan það var óbrúað. En
þótt það láti lítt yfir sér í þurrkatíð, getur annað orðið upp á
teningnum, þegar skaftfellskar stórrigningar bylja dægrum sam-
an á þessu brattlenda vatnasvæði. í Tungufljót falla óteljandi
fjallalækir og smáár, svo um það mætti segja, eins og Hannes
Hafstein komst svo meistaralega að orði um Valagilsá: ,,Áin, sem
stundum er ekki í hné, er orðin að skaðræðisfljóti."
Tvær brýr eru á Tungufljóti, önnur byggð árið 1930, skammt
tyrir ofan Hemru, en hin 1965 nálægt Snæbýli.
Hólmsá kemur upp í Hólmsárbotnum, svo kölluðum, við rætur
Torfajökuls og fellur til suðausturs meðfram utanfljótsheiðunum að
G odasteinn
33