Goðasteinn - 01.09.1968, Page 39

Goðasteinn - 01.09.1968, Page 39
inni hið efra, lá þjóðleiðin um Meðallandið og yfir fljótið hjá Söndum. Svo að segja allir ferðamenn, sem ekki áttu heima á fljótsbakkanum, fengu sér fylgd yfir það, og oftast allra manna urðu Sandamenn til þess að fylgja, enda engir jafn kunnugir og þeir, hvernig og hvar vatnið var mest á hverjum tíma, en það var mjög breytilegt. Það var vissulega íþrótt að vera slyngur vatnamaður, en sú íþrótt gat oft verið bæði erfið og hættuleg, en jafnframt skemmtileg. Einkum voru það vetrarferðirnar, sem varasamar voru, hvort sem riðið var milli skara eða farið á veikum og viðsjálum ís. Þegar fljótið var riðið milli skara, var alltaf um marga ála að ræða, því ófært var það með öliu, ef svo var að því kreppt, að það væri komið í einn ál. Vatnamaðurinn, sem þá var á ferð yfir Kúðafljót, þurfti vissulega að mörgu að hyggja og skipti miklu máli, hvort frost var og fljótið að leggja eða um þýðviðri var að ræða og vatnið að sprengja af sér ís- fjötrana og í nokkrum vexti. í frosti var það grunnstingullinn, sem sérstaklega þurfti að varast, en hann er ísnálar, sem myndast á yfirborðinu við áframhaldandi kælingu vatnsins, sökkva til botns og sitja þar kyrrar. Heldur þetta áfram að hækka, meðan frostið helzt, þar til hann hefur náð yfirborðinu. Mcðan grunnstingull- inn er enn á kafi í vatninu, getur hann líkzt furðanlega mikið hinum raunverulega botni, en er ofar, þannig að vatnið sýnist grynnra, vegna þess að sandurinn, sem vatnið flytur með sér, hefur setzt að í honum og gert hann eins á litinn. Yfirborð grunn- stingulsins er samt ekki eins og vatnsbotninn. Hann er dálítið ó- sléttari. Þessar ójöfnur koma fram á yfirborði vatnsins, og á því einu gat vatnamaðurinn þekkt fyrirbærið og varazt það. Ef stig- ið er út á grunnstingulinn, veitir hann ekki viðnám, heldur sekk- ur maður til botns, en grunnstingullinn flýtur upp á allstóru svæði og myndast þá geil þvert yfir álinn, þar sem yfir var farið. En saga hans er ckki öll sögð með þessu. Hann hefur víða náð upp úr vatninu og orðið að ísi. Þegar svo ísalausnir fara fram, hversu oft sem það kann að vera á vetri hverjum, losna þessir grunn- stingulsjakar og koma niður álana morrandi í hálfu kafi, jafn viðsjálir allri umferð, hvort sem það er maður, hestur eða bátur. Þeir eru ósýnilegir flestum augum. Aðeins glöggur og þaulreynd- Goðasteinn 37

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.