Goðasteinn - 01.09.1968, Page 44

Goðasteinn - 01.09.1968, Page 44
Bólstruð voru bílsins sæti, brúað fljót og á, en sérðu hnakk og söðul hanga? Sagt þeir gætu frá tveim, sem heim á hæpnum vöðum héldu, að lágum rann. Ef til vill bar einhver Kópur cinnig söðul þann. Erlend tízka í efni og fati átti lítinn stað þegar vetrar hríðarhamur hramminn lagði að, en þarna er lyppulár og rokkur, ljósan ber það vott þeirri, er kunni í þráð að spinna þelið, hlýtt og gott. Gengum við frá gnægtaborði, en gáðu að, þarna er ax, melgrasstöngin bleika, er bar þá brauð til næsta dags, þegar hungurvofan virtist vaka ein við dyr. Er sú máltíð öllu betri, er þú neyttir fyr? Göngum við um gólf og skoðum geymdan minjasjóð. Fram á nætur oft við orfið afi þreyttur stóð, og við lágar eldhúshlóðir amma háði stríð. > En grunninn líka, lúnum höndum, lögðu að þinni tíð. 42 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.