Goðasteinn - 01.09.1968, Síða 50
Einar Einarsson frá Berjanesi:
Sagnir
Landeyings
Vinnusöngur
Ég hef stundum verið að hugsa um það, að Jón Thoroddsen
sýslumaður hafi ekki ort vísuna: „Úr þcli þráð að spinna“ út í
bláinn, heldur haft sanna mynd af lífi og starfi fyrir augum. Skal
ég segja dæmi, sem hlýtt getur upp á það: Einhverju sinni, þegar
ég var drengur í Berjanesi, var ég sendur um miðjan dag einhverra
erinda í vesturbæinn í Ey. Þar bjuggu þá hjónin Páll Ögmunds-
son og Guðfinna Jónsdóttir. Eins og venja var til, barði ég þar
þrjú högg á bæjardyrnar, en þegar ég var búinn að því og enginn
kom til dyra, gekk ég inn í bæinn. Inni í göngum barst þá mikill
ómur til mín frá baðstofunni, sem stafaði af því, að konan var að
tvinna mórauðan þráð á rokk, sem hafði mjög hátt, en hærra óm-
aði þó söngurinn í konunni sjálfri við vinnuna. Hún var að kveða
eða syngja siglingavísur úr Bernótusar rímum Borneyjarkappa:
Súða lýsti af sólunum,
síla víst á bólunum,
einatt tísti í ólunum,
að sem þrýstu hjólunum.
48
Godasteinn