Goðasteinn - 01.09.1968, Qupperneq 55

Goðasteinn - 01.09.1968, Qupperneq 55
Enga aðra hef ég heyrt hafa þessa vísu fyrir munni sér og þó kynnzt nokkuð mörgu fólki. Furðu gegnir, hvað svona lagaðar lausavísur geta lifað lengi, lítið eða ekkert aflagaðar. Um útilegumenn Það lifði lengi útilegumannatrú í Landeyjum, bæði af því, sem fólk hafði lesið í Þjóðsögum Jóns Árnasonar og ýmsum munnmæl- um, sem gengu manna milli og aldrei hafa komizt á prent. Munu þær nú útdauðar, því enginn er til að blása lífi í þær glæður síðan Jón sálugi söðli dó. Ég heyrði Þuríði Jónsdóttur, sem lengi bjó ekkja á Strönd í Landeyjum, segja frá manni, sem hún mundi eftir, þegar hún var að alast upp á Voðmúlastöðum í Landeyjum, og hét Erlendur Helgason. Hann þótti undarlegur í háttum, var lausingi og hvergi vistráðinn en þó ekki flakkari. Hann hafði þann hátt á hegðun sinni, að hann keypti hesta og hvarf með þá á vorin, þegar komnir voru hrossahagar, þar sem þeirra var von. Enginn vissi, hvert Er- lendur fór, en jafnan var hann þrjár vikur til mánuð í því ferða- lagi, jafnvel lengur, því enginn hugði að því, hvar hann hélt sig. Einhverju sinni var hann búinn að kaupa tíu hesta, alla gráa. Hann hvarf burt með þá og kom með engan aftur. Eitt af því, sem þótti undarlegt við mann þennan var, að hann sást aldrei meðhöndla peninga en borgaði þó öllum út, sem hann skipti við. Var því álit manna, að hann fæli peninga sína í jörðu. Einu sinni bar svo við, að bóndi var að stinga út úr lambhúsi um vorið, þar sem Erlendur hafði verið um veturinn, og hrökk þá kökksnifsi úr jötubekknum. Þar fann bóndinn í holunni skjóðu- tuðru með eitthvað um 17 spesíum. Það var gizkað á, að Erlend- ur hefði falið hana þar. Ég man ekki fyrir víst, hvort þetta var á Efri-Uifsstöðum eða í Hailgeirseyjarhjáleigu. Eitt af því, sem Þuríður sagði um Erlend frá því, er hann var hjá foreldrum hennar á Voðmúlastöðum, var að þar tapaðist hrútur- inn frá ánum um fengitímann. Það var verið að gizka á, að hann hefði farið í ærnar á Seli eða á einhvern af bæjunum þar í kring. Goðasteinn 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.