Goðasteinn - 01.09.1968, Blaðsíða 77
Runólfur var ágætur vatnamaður og fylgdi oft fólki yfir Skeið-
arársand. Eftir hann birtist ritgerð um, hvernig ætti að velja og
ríða vötn árið 1851, og var hún endurprentuð í tímaritinu „Hestur-
inn okkar“ 1. tbl. 1967. Engar sagnir hef ég þó heyrt um einstakar
ferðir hans yfir Skeiðarársand utan eina, og mun það hafa verið
seinasta ferð hans um þær slóðir, enda var hann þá gamall og blind-
ur. Hann varð samferða Fljótshverfingum, sem fóru kaupstaðar-
ferð á Papós, en hann mun hafa farið að finna börn sín, sem bjuggu
í Svínafelli og á Reynivöllum í Suðursveit og dvalið hjá þeim,
meðan hinir voru í kaupstaðarferðinni.
Ekkert gerðist söguiegt í þeirri ferð, fyrr en þeir komu að Skeið-
ará í bakaleið. Hún var þá mikil en þó talin slarkandi, þar sem
hún féll bezt. Við ána varð nokkur töf, því menn gengu sem bezt
frá klyfjum, áður en lagt var út í, eins og jafnan var gjört, þegar
farið var yfir stórárnar. Runólfur var á þaulvönum vatnahesti og
fór ekki af baki meðan á þessu stóð.
Hesti hans leiddist biðin, enda heimfús, og lagði í ána, félögum
Runólfs tii mestu skelfingar, því brotið var vandfarið, svo ekkert
mátti út af bera, en klárinn þræddi það eins og bezt mátti verða
og skilaði Runólfi heilum yfir. Þá varð einum félaga hans að orði:
„Annskoti hefir kallinn verið góður (vatnamaður), meðan hann sá.“
Ljóð Rangæinga
Sýnisbók rangæskrar ljóðagerðar á 20. öld
er komin út. í bókinni eiga ljóð sextíu og átta höfundar. Hún er 232
bls. að stærð, prentuð á mjög góðan pappír og öll hin varrdaðast í ytra
búnaði. Auk ljóðanna eru í bókinni myndir og æviágrip höfundanna.
Væntum við að Rangæingum og fólki af rangæskum ættum sem og
öðrum ljóðaunnendum þyki fengur að bókinni og styrki okkur útgef-
endur með því að kaupa hana.
Ljóð Rangœinga er sérlega heppileg gjafabók. Gefið Ljóð Rangæinga
sem jólagjöf í ár.
GOÐ ASTEIN SÚTGÁF AN
Skógum
Goðasteinn
75