Goðasteinn - 01.09.1968, Blaðsíða 79

Goðasteinn - 01.09.1968, Blaðsíða 79
eitthvað gátu klambrað. Á Stóra-Hofi var fjöldi manns í heimili, ungir og gamlir, um tuttugu manns. Það þurfti líka oft að beizla hest, verkefnin voru óþrjótandi, enda var ííka mikið unnið. Ég var þarna heimilismaður í tvö ár. Næsta sumar var ég í Þykkvabænum, það var sumarið 1914. Búið var að ákveða að rífa Háfskirkju og flytja hana í Þykkvabæinn. Réðist ég þangað sem smiður og var frá byrjun og þangað til búið var að vígja kirkjuna. Var það gert seint í september. Þetta er steinsteypt hús og er með fyrstu steinhúsum hér á Suðurlandi. Feng- inn var vanur múrari úr Reykjavík, og svo vorum við fjórir smið- irnir. Þá var lítil tæknin, aðeins skófla til að hræra steypuna, og gerðu það sóknarmenn. Var þeirri vinnu jafnað niður. Steypunni var mokað í fötur og hún dregin upp í bandi. Það mundi þykja lítill gangur nú á dögum. Á þessum tíma var Þykkvibærinn umflot- inn vatni, Djúpós að ofan, Háfsós að vestan, og voru bæirnir á rimum og börðum og hlaðnir garðar til að ganga á milli bæja. Við vorum tveir sem höfðum húsnæði hjá Hafliða Guðmundssyni í Búð. Hann var þá að byrja búskap. Þar fengum við fæði og þjón- ustu, og mun Hafliði hafa fengið 60-70 aura fyrir hvorn okkar á dag. Það var Tómas Tómasson frá Reyðarvatni, sem var með mér í Búð, góður smiður og skemmtilegur félagi. Við fórum í útreiðartúra á sunnudögum og höfðum tvo hesta hvor. Hópferðir voru farnar upp á Rangárvelli, svo og á íþrótta- mót Skarphéðins að Þjórsártúni. Þá voru rigningar og þess vegna meira í vötnunum. Á mótinu voru margir mættir og voru kaffi- veitingar og þess háttar, og var ég þar hjálparmaður við söluna. Mér er minnisstætt, að það kom einn stórbóndi að fá sér kaffi og tók hann upp hundrað króna seðil til að borga kaffið með, en það kostaði 25 aura. Svo stóran pening hafði ég aldrei séð fyrr. Vegna þess að ég var þarna við afgreiðsluna komst ég ekki með fólkinu niður í Þykkvabæ um kvöldið og varð að bíða morgundagsins. Var ég einn og hafði tvo fola fjögurra vetra til reiðar. Þegar ég kom að Háfsósum, sé ég að þeir eru geisilega vatnsmiklir, og var ég á báðum áttum með að leggja út í þá á Jarpi mínum ef það yrði sund. Vatnið var bæði djúpt og breitt, og lenti ég á rogasundi, en það fór allt vel, og skilaði Jarpur mér í land. Fannst mér og öðr- Goðasteinn 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.